Færeyjar U21
0
2
Ísland U21
0-1 Benoný Breki Andrésson '14
0-2 Daníel Tristan Guðjohnsen '17
06.10.2026  -  17:00
Tórsvöllur
Undankeppni EM U21
Aðstæður: 8 gráður og skýjað í Gundadal
Dómari: Matthew De Gabriele (MLT)
Maður leiksins: Amin Cosic
Byrjunarlið:
1. Hans Jákup Armgrímsson (m)
2. Bjarti Thorleifsson
3. Ingi Arngrímsson
5. Jákup Vilhemsen
9. Heini Sörensen
14. Jógvan Gullfoss ('70)
15. Árni Nóa Atlason
17. Ejvind Mouritsen ('54)
6. Arnór Brandsson ('79)
10. Dávid Reynheim ('70)
13. Jósef Ólavsson

Varamenn:
12. Sámal Á Steig (m)
4. Jónas Prior ('54)
8. Dávid Andreasen ('70)
18. Hans Höjgaard ('70)
7. Bartal Páll Klein ('79)
11. Marjus Nón
16. Sjúrður Henriksen
19. Jón Steingrímsson
20. Jákup Pauli Frederiksberg

Liðsstjórn:
Ólavur Mikkelsen (Þ)

Gul spjöld:
Bjarti Thorleifsson ('72)
Bartal Páll Klein ('80)
Árni Nóa Atlason ('86)

Rauð spjöld:
Skýrslan
@elvargeir Elvar Geir Magnússon
Skýrslan: Klárað með glæsibrag eftir brösótta byrjun
Hvað réði úrslitum?
Íslenska liðið var einfaldlega betra á öllum sviðum leiksins. Færeyjar höfðu að engu að keppa og það sást á spilamennskunni. Sigurinn var aldrei í hættu en það er þó hreinlega ótrúlegt að mörkin hafi ekki orðið fleiri. Menn stigu aðeins af bensíngjöfinni í seinni hálfleik. En þessi gluggi hjá Íslandi var framúrskarandi! Gleymum því ekki að íslenska liðið hóf þessa keppni á því að tapa heima fyrir Færeyjum og gera jafntefli gegn Eistlandi.
Bestu leikmenn
1. Amin Cosic
Var algjörlega baneitraður á þeim köflum þar sem íslenska liðið lék sem best. Geislar af sjálfstrausti, hefur tekið miklum framförum á skömmum tíma og mun vonandi halda áfram á þeirri beinu braut í búningi Íslands.
2. Daníel Freyr Kristjánsson
Það er hægt að henda ýmsum nöfnum í þennan dálk en mér finnst að Daníel Freyr eigi hrós skilið fyrir ljómandi flottan leik.
Atvikið
Daníel Tristan Guðjohnsen hefur verið óstöðvandi í þessum glugga og þegar hann kom Íslandi tveimur mörkum yfir þá hugsaði maður 'Hvað mun þetta enda í mörgum mörkum í kvöld?'
Hvað þýða úrslitin?
Ísland endar í öðru sæti riðilsins með 18 stig. Dregið verður í umspilið á föstudag en leikirnir fara fram í næsta mánuði. Sigurvegarinn úr því einvígi (leikið heima og að heiman) fer á EM U21 landsliða í Albaníu og Serbíu á næsta ári.
Vondur dagur
Fyrir kvöldið átti Sviss möguleika á því að ná öðru sætinu og komast í umspilið. Svisslendingar fengu 7-1 útreið gegn Frakklandi eftir að hafa tapaði 5-1 fyrir Íslandi á dögunum. Samtals 12-2 í síðustu tveimur leikjum. Alvöru magalending hjá Sviss í lok riðilsins en liðið hefði farið áfram með því að sigra Frakka í kvöld.
Dómarinn - 9
Það vantaði ekkert malt í manninn með flautuna.
Byrjunarlið:
1. Lúkas Petersson (m)
2. Daníel Freyr Kristjánsson
3. Júlíus Mar Júlíusson
5. Hlynur Freyr Karlsson
9. Daníel Tristan Guðjohnsen ('78)
10. Eggert Aron Guðmundsson ('93)
15. Amin Cosic ('78)
18. Kjartan Már Kjartansson
22. Benoný Breki Andrésson ('63)
4. Davíð Helgi Aronsson
8. Galdur Guðmundsson ('63)

Varamenn:
13. Ásgeir Orri Magnússon (m)
2. Hlynur Þórhallsson
11. Hilmir Rafn Mikaelsson ('78)
16. Haukur Andri Haraldsson
17. Freyr Sigurðsson ('78)
20. Viktor Bjarki Daðason ('63)
21. Tómas Orri Róbertsson ('93)
23. Nóel Atli Arnórsson
19. Stígur Diljan Þórðarson ('63)

Liðsstjórn:
Lúðvík Gunnarsson (Þ)
Gísli Þorkelsson

Gul spjöld:
Stígur Diljan Þórðarson ('85)

Rauð spjöld: