Fotbolti.net
Besta deildin
Andri Stefánsson
Andri Stefánsson
Besta kvenna - Efri hluti
Eikarvöllurinn
Breiðablik
Breiðablik
5 - 4
Þróttur R.
Þróttur R.
0 - 19' Bríet Fjóla Bjarnadóttir0 - 219' Sierra Marie Lelii0 - 326' Bríet Fjóla BjarnadóttirHrafnhildur Ása Halldórsdóttir 28'1 - 31 - 442' Sierra Marie LeliiKristín Dís Árnadóttir 63'2 - 4Bryndís Arna Níelsdóttir 73'3 - 4Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir 83'4 - 4Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir 90'5 - 4
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson

SKÝRSLAN: Markaregn og ótrúlegur endurkomusigur á Eikarvellinum

Hvað réði úrslitum?

Þróttarar voru miklu betri í fyrri hálfleik og Blikar sáu ekki til sólar. Í seinni hálfleik breyttist hins vegar leikurinn og þegar Bryndís Arna skoraði til að minnka muninn í tvö mörk keyrði Breiðablik yfir Þrótt.

Bestu leikmenn

1. Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir

Gríðarlega auðvelt val. Hrafnhildur Ása var mögnuð í dag. Hún setti auðvitað þrennu og var allt í öllu í sóknarleik Breiðabliks. Hún er komin með 14 mörk á tímabilinu og stefnir klárlega á gullskóinn.

2. Agla María Albertsdóttir

Fyrirliðinn var stórkostleg í dag. Hún var með þrjár stoðsendingar og stoðsendingin á Hrafnhildi Ásu til að jafna leikinn var úr efstu hillu.

Atvikið

Það kemur ekkert annað til greina heldur en sigurmarkið. Hrafnhildur Ása fullkomnaði þrennuna og Blikar unnu ótrúlegan endurkomusigur.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða að Breiðablik er með 46 stig á toppi deildarinnar. FH vann þægilega gegn ÍBV áðan og þær eru í 2. sæti með 43 stig. Það eru tvær umferðir eftir og titilbaráttan æsispennandi. Þróttur er í 5. sæti með 26 stig og hefur að litlu að keppa

Vondur dagur

Það var engin sem átti vondan dag í dag.

Dómarinn - 6

Vilhjálmur Alvar var ágætur í dag. Nokkrar furðulegar ákvarðanir en á heildina litið ágætlega dæmt.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.