SKÝRSLAN: Ferna og fjör í Firðinum
Hvað réði úrslitum?
Heimakonur voru einfaldlega miklu skarpari í öllum sínum aðgerðum. Lið ÍBV virkaði á löngum köflum hálf andlaust og leikmenn eins og þær gætu ekki beðið eftir því að klára þetta mót. Það nýttu heimakonur sér til hins ítrasta og hreinlega keyrðu yfir lið ÍBV.
Bestu leikmenn
1. Nia Raisa Christopher
Fjögur mörk og gjörsamlega frábær! Mætt á réttum tíma á rétta staði og uppskar eftir því. Hefði alveg getað bætt við einu marki til þegar hún átti frábært skot í slánna.
2. Helena Maree Errington
Fjórar stoðsendingar og eitt mark. Það kallar maður að skila góðu dagsverki. Frábær dagur hjá henni og hún gerir sterkt tilkall í að vera besti leikmaður leiksins líkt og Nia. Það var í það minnsta ekki auðvelt verk að velja á milli þeirra.
Atvikið
Það eru svo sem engin stór atvik sem sitja í minninu eftir þennan leik. Nema ef vera skyldi blóðug barátta í fyrri hálfleik þegar Avery Mae Vanderven og Mackenzie Elyze Smith skullu saman í baráttu um boltann og fengu báðar vænan skurð.
Hvað þýða úrslitin?
FH eltir Breiðablik á toppi deildarinnar og situr í 2.sætinu þremur stigum á eftir Breiðablik. ÍBV áfram í 3.sætinu og siglir þar lygnan sjó.
Vondur dagur
Varnarleikur ÍBV var á köflum ansi brothættur í dag og því fór sem fór. Vondan dag hlýtur því Jón Ólafur Daníelsson þjálfari liðsins. Ekki nóg með það að það sé hrikalegt að horfa á liðið sitt tapa 5-0 heldur fékk hann sömuleiðis að líta rauða spjaldið. En hann lét þá einhver orð falla sem dómurum leiksins fannst nóg um þegar hann kvartaði yfir því að FH hefði verið of lengi að taka hornspyrnu.
Dómarinn - 6
ÍBV átti að öllum líkindum að fá vítaspyrnu í fyrri hálfleik þegar boltinn fór i hönd Mackenzie í teig FH. Að öðru leyti rekur mig ekki minni í að Twana hafa klikkað.



