Leik lokið!
Stórsigur FH staðreynd í baráttunni um titilinn. Blikar enn þremur stigum á undan en FH hefur lokað bilinu hvað markatölu varðar. Draumaleikur í síðustu umferð lifir.
92. mín
Hornspyrnan tekin inn á miðjan teiginn þar sem Helena skallar hann fyrir fætur Niu sem skilar boltanum í netið af stuttu færi.
Enn tengja þær!
Nia Raisa Christopher (stoðsending: Helena Maree Errington)
Hornspyrnan tekin inn á miðjan teiginn þar sem Helena skallar hann fyrir fætur Niu sem skilar boltanum í netið af stuttu færi.
92. mín
Þetta er að fjara út í rólegheitum. FH á hornspyrnu.
90. mín
Uppbótartími er að lágmarki tvær mínútur.
87. mín
Olga sleppur ein í gegn og skilar boltanum í netið. Flaggið er á lofti og það telur ekki. Virkaði virkilega tæpt.
83. mín
Hafrún Birna með kröftugt hlaup. Nær fínu skoti en Guðný ver í horn.
77. mín
InnUnnur Thorarensen Skúladóttir
ÚtAndrea Rán Snæfeld Hauksdóttir
77. mín
InnElín Björg Norðfjörð Símonardóttir
ÚtIngibjörg Magnúsdóttir
77. mín
Gult spjald
Sandra Voitane
75. mín
Ótrúlegar senur í Kópavogi þar sem Breiðablik er að hrifsa toppsætið til sín á ný. Þar er staðan jöfn og viðsnúningur leiksins þar algjör en Blikar voru 4-1 undir í hálfleik.
75. mín
Eyjakonur spila sig laglega í gegnum vörn FH. Boltinn inn á teiginn frá hægri og lendir við fætur Olgu sem lætur vaða en boltinn hátt yfir.
Olga í færi

71. mín
Rautt spjald
Jón Ólafur Daníelsson
Hefur látið einhver orð falla og fær rautt spjald.70. mín
Lúmsk tilraun frá Ingibjörgu. Kemur inn á teiginn frá hægri og virðist ætla að taka fyrirgjöf en lætur vaða í nærhornið. Guðný mætt og ver í horn.
69. mín
Viktorija með skot af um 20 metra færi. Beint í fang Aldísar.
65. mín
InnAllison Grace Lowrey
ÚtErla Hrönn Unnarsdóttir
65. mín
InnEydís María Waagfjörð
ÚtKristín Klara Óskarsdóttir
65. mín
InnViktorija Zaicikova
ÚtMagdalena Jónasdóttir
63. mín
Nia með hörkuskot sem smellur í slánni. Guðný týnir boltanum sem fer næstum af henni í netið en hún nær að koma boltanum í horn að lokum.
Sláarskot!

60. mín
InnHafrún Birna Helgadóttir
ÚtThelma Lóa Hermannsdóttir
60. mín
InnHildur Katrín Snorradóttir
ÚtHrönn Haraldsdóttir
59. mín
Heimakonur vinna boltann hátt á vellinum og er fjölmennar fram á við. Helena hefur marga kosti að senda á en velur að þræða boltann inn fyrir á Niu sem keyrir í átt að marki og klárar fagmannlega framhjá Guðnýju í marki ÍBV.
Þrjú mörk frá Niu og Helena lagt þau öll upp!
Tvöföld Þrenna mörk og stoðsendingar!
Nia Raisa Christopher (stoðsending: Helena Maree Errington)
Heimakonur vinna boltann hátt á vellinum og er fjölmennar fram á við. Helena hefur marga kosti að senda á en velur að þræða boltann inn fyrir á Niu sem keyrir í átt að marki og klárar fagmannlega framhjá Guðnýju í marki ÍBV.
Þrjú mörk frá Niu og Helena lagt þau öll upp!
58. mín
Deja með hörkuskot af löngu færi sem fer rétt framhjá markinu.
57. mín
Olga með skot eftir ágæta sókn ÍBV en setur boltann yfir markið.
55. mín
Olga að sleppa í gegn eftir markspyrnu frá ÍBV. Nær ekki valdi á boltanum og Aldís kemst í boltann.
55. mín
Thelma Lóa með kröftugt hlaup inn á teiginn með boltann. Sér Niu á markteignum og reynir að finna hana en varnarmaður kemst á milli.
53. mín
Heimakonur i færi, Helena reynir skotið en Guðný ver í horn.
52. mín
Helena Hekla sleppur í gegn en nær ekki að leggja boltann nægilega vel fyrir sig. Aldís mætir út og nær til boltans og hreinsar.
50. mín
ÍBV fær hornspyrnu.
Boltinn fellur fyrir fætur Olgu í þröngu færi í markteignum. Hún nær skotinu en setur boltann í stöngina.

47. mín
Ingibjörg Magnúsdóttir með allt það pláss og tíma til þess að teikna bolta frá hægri inn á teiginn beint fyrir fætur Helenu sem er alein og óvölduð inn í teig ÍBV. Helena lætur ekki bjóða sér það tvisvar og skorar með góðu skoti úr teignum.
MARK!
Helena Maree Errington (stoðsending: Ingibjörg Magnúsdóttir)
Ingibjörg Magnúsdóttir með allt það pláss og tíma til þess að teikna bolta frá hægri inn á teiginn beint fyrir fætur Helenu sem er alein og óvölduð inn í teig ÍBV. Helena lætur ekki bjóða sér það tvisvar og skorar með góðu skoti úr teignum.
46. mín
Heimakonur sparka okkur af stað á ný.
Síðari hálfleikur hafinn
Heimakonur sparka okkur af stað á ný.
45. mín
Hálfleikur
Flautað til hálfleiks hér í Hafnarfirði. FH verið með yfirburði á vellinum og leiða sanngjarnt.
Við tökum okkur smá hlé og mætum eftir korter eða svo með síðari hálfleikinn.

+4
Eyjakonur ógna, Olga kemur sér inn á teiginn frá vinstri og reynir skotið en nær engum krafti í það og varnarmaður kemst á milli.
45. mín
+1
Uppbótartíminn er sex mínútur að lágmarki.
45. mín
Ef stærðfræðikunnátta mín bregst mér ekki er FH á toppi Bestu deildarinnar eins og sakir standa. Breiðablik sem var með +29 í markatölu fyrir umferðina er 4-1 undir gegn Þrótti og þar með með + 26. FH var með +24 fyrir leiki dagsins og þar með +26 sömuleiðis. Markatala liðanna því jöfn en FH hefur skorað fleiri mörk og er því á toppnum miðað við það.
FH komið á toppinn

41. mín
Hrönn Haraldsdóttir í dauðafæri í teignum, Guðný mætir vel á móti og lokar á hana.
Guðný ver aftur
Hrönn Haraldsdóttir í dauðafæri í teignum, Guðný mætir vel á móti og lokar á hana.
40. mín
Birna Kristín í skotfæri í teig ÍBV. Nær föstu skoti en stefnan beint í hendur Guðnýjar.
35. mín
InnFridrikka Marie Clementsen
ÚtAvery Mae Vanderven
Avery sömuleiðis lokið leik.
35. mín
InnAnna Heiða Óskarsdóttir
ÚtMackenzie Elyze Smith
32. mín
Báðar liggja enn og mér sýnist sem svo að verið sé að kalla til sjúkrabíl. Mackenzie fékk stóran skurð á ennið og það blæðir duglega úr.
Mackenzie er staðin upp og gengur óstudd af velli en hefur lokið leik.

30. mín
Avery Mae Vanderven og Mackenzie lenda í svkalegu samstuði og steinliggja báðar.
Leikmenn beggja liða bregðast við og huga að þeim en það virðist hafa opnast vænn skurður hjá þeim báðum.

27. mín
Sláarskot
. Helena Maree Errington með hörkuskot úr teignum sem smellur í slánni og yfir.
Yfirburðir FH algjörir.
Yfirburðir FH algjörir.
22. mín
FH er í draumaheimi akkúrat núna. Tíðindi berast að Blikar séu lentir tveimur mörkum undir á heimavelli gegn Þrótti.
21. mín
Olga með skot frá vinstra vítateigshorni. Beintí fang Aldísar.
20. mín
ÍBV fær sína fyrstu hornspyrnu.
19. mín
Helena reynir skotið, alls ekki galin tilraun hárfínt framhjá markinu.
18. mín
FH vinnur aukaspyrnu á hættulegum stað. Olga brotleg gegn Helenu.
15. mín
Thelma með góðan bolta fyrir markið frá vinstri. Nia fyrst á hann en nær ekki krafti í skotið sem varnarmaður hendir sér fyrir.
Nia á höttunum eftir þrennunni
Thelma með góðan bolta fyrir markið frá vinstri. Nia fyrst á hann en nær ekki krafti í skotið sem varnarmaður hendir sér fyrir.
13. mín
Sóknaraðgerðir heimakvenna mjög beinskeyttar. Vinna hér horn.
11. mín
Olga spyrnir boltanum í hendi Mackenzie í teignum og kallar eftir vítaspyrnu. Við nánari skoðun hefur hún talsvert til síns máls en Twana ekki á því að dæma.
Víti?

7. mín
Aljgört samskiptaleysi í vörn ÍBV, Helena með boltann hægra megin í teignum og finnur Niu aleina í markteignum sem skorar af stuttu færi.
Hvar var vörnin?
Vörn ÍBV steinsofandi
Nia Raisa Christopher (stoðsending: Helena Maree Errington)
Aljgört samskiptaleysi í vörn ÍBV, Helena með boltann hægra megin í teignum og finnur Niu aleina í markteignum sem skorar af stuttu færi.
Hvar var vörnin?
5. mín
Eftir hornspyrnuna hélt FH liðið pressunni. Vinna boltann við teig ÍBV, boltinn berst á Helenu sem finnur Niu í teignum. Hún gríðarsterk og heldur boltanum vel, nær að snúa í átt að marki og láta vaða og boltinn liggur í netinu,
MARK!
Nia Raisa Christopher (stoðsending: Helena Maree Errington)
Eftir hornspyrnuna hélt FH liðið pressunni. Vinna boltann við teig ÍBV, boltinn berst á Helenu sem finnur Niu í teignum. Hún gríðarsterk og heldur boltanum vel, nær að snúa í átt að marki og láta vaða og boltinn liggur í netinu,
4. mín
Ingibjörg Magnúsdóttir með fyrirgjöf frá hægri. Eyjakonur komast á milli og FH fær fyrsta horn leiksins.
2. mín
ÍBV svarar
Allison Patricia Clark í hörkufæri. Kemur sér inn á teiginn frá hægri og reynir skotið sem fer rétt framhjá stönginni fjær.
1. mín
Thelma Lóa með skalla að marki eftir góða fyrirgjöf frá hægri. Góður séns en hittir ekki markið.
28 sekúndur og fyrsta færið.
Thelma Lóa með skalla að marki eftir góða fyrirgjöf frá hægri. Góður séns en hittir ekki markið.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað. Það eru gestirnir úr Vestmannaeyjum sem hefja hér leik.
Fyrir leik
Emelía spáir
Landsliðskonan Emelía Óskarsdóttir, sem spilar fyrir HB Köge, spáir í leiki umferðarinnar. Um leik FH og ÍBV sagði hún.
FH 3 - 2 ÍBV
Hérna fáum við aðeins meiri markaleik. Andrea Rán setur tvö og Ingibjörg Magnúsdóttir setur einn banger. Allison Lowrey skorar líka og svo Olga. 3-2 er staðreynd.

FH
Heimakonur eiga í harðri baráttu við Breiðablik um Íslandsmeistaratitilinn. Þær sitja í öðru sæti deildarinnar þremur stigum á eftir toppliðinu og mega illa við að misstíga sig nú þegar aðeins þrjár umferðir eru eftir.
Sárt tap í síðasta leik gegn Grindavík/Njarðvík setti hindrun á leið FH að titlinum og eru þær örugglega staðráðnar í að kvitta fyrir þann leik í dag.
Margt í frammistöðu liðsins í Evrópueinvígi gegn Frankfurt sýnir að liðið er klárlega tilbúið að gera alvöru atlögu að titlinum. En til þess að því megi verða þarf liðið á þremur stigum að halda í dag.

Pressulausar með öllu siglir lið ÍBV hin margfræga lygna sjó í deildinni. Hærra fara þær ekki í töflunni úr þessu en stefna eflaust á að halda þriðja sætinu sem þær sitja nú í.
Eftir naumt tap gegn Breiðablik fyrir viku síðan er liðið efalaust staðráðið í að koma sér aftur á sigurbraut og gera hinu titilbaráttuliðinu skráveifu í dag.

ÍBV

Góðan dag kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin í þessa beinu textalýsingu Fótbolta.net frá leik FH og ÍBV í Bestu deild kvenna en flautað verður til leiks í Kaplakrika á slaginu 14:00

Kaplakriki heilsar