Fotbolti.net
Besta deildin
Andri Stefánsson
Andri Stefánsson
Besta karla - Efri hluti
Víkingsvöllur
Víkingur R.
Víkingur R.
2 - 2
ÍA
ÍA
Valdimar Þór Ingimundarson 7'1 - 0Aron Elís Þrándarson 17'2 - 02 - 136' Markús Páll Ellertsson2 - 253' Peter Oliver Ekroth (sjm)
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson

SKÝRSLAN: Jafntefli í gæðalitlum leik

Hvað réði úrslitum?

Víkingar byrjuðu leikinn af miklum krafti. Þeir voru komnir tveimur mörkum yfir eftir tæpar 20 mínútur og allt stefndi í sigur Víkings. Markús Páll minnkaði hins vegar muninn fyrir Skagamenn stuttu fyrir hálfleik. Skagamenn nýttu sér það og jöfnuðu metin í seinni hálfleik. Jafntefli heilt yfir sanngjörn úrslit

Bestu leikmenn

1. Aron Elís Þrándarson (Víkingur)

Aron var flottur í kvöld. Setti eitt mark, hélt vel í boltann og var hættulegur fram á við.

2. Markús Páll Ellertsson (ÍA)

Skoraði þetta mikilvæga mark sem minnkaði muninn. Var oft á tíðum hættulegur og skapaði usla.

Atvikið

Þegar Markús Páll jafnaði leikinn fyrir ÍA. Markið breytti gangi leiksins og Skagamenn gengu á lagið.

Hvað þýða úrslitin?

Víkingur er auðvitað búinn að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn. Þeir eru í 1. sæti með 60 stig. Skagamenn eru enn í 5. sæti, tveimur stigum á eftir Blikum sem sigruðu Keflavík í kvöld.

Vondur dagur

Árni Marinó var í brasi í dag. Misreiknaði skoppið í fyrsta markinu og leit út fyrir að vera frekar óöruggur eftir það.

Dómarinn - 7

Sigurður Hjörtur og hans teymi flottir í dag.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.