Fyrir leik
Dómarinn
Elías Ingi Árnason verður með flautuna í kvöld. Aðstoðarmenn hans verða Jovan Subic og Þráinn Jón Elmarsson, á meðan Pétur Guðmundsson sér um fjórðu dómara verkefnin. 

Fyrir leik
Spáin
Valur 0 - 3 KA
Valsmenn eru bara alveg hættir. KA að berjast fyrir lífi sínu. Þetta verður bara vel sannfærandi hjá KA. Þeir þurfa þennan sigur eins og súrefni. Adam Ægir skorar 2 mörk.
Valsmenn eru bara alveg hættir. KA að berjast fyrir lífi sínu. Þetta verður bara vel sannfærandi hjá KA. Þeir þurfa þennan sigur eins og súrefni. Adam Ægir skorar 2 mörk.
Fyrir leik
Líkindin ekki með KA í liði
Ef það fer eins og veðbankar halda í dag, þá verða KA menn í fallsæti eftir umferðina.
Fyrir leik
Forsetabikar eða fall?
KA menn eru í mikilli fallhættu þar sem þeir eru aðeins með tveimur stigum meira en Þór sem situr í fallsæti einu sæti fyrir neðan KA. Norðanmenn hafa unnið síðustu tvo leiki með þremur mörkum gegn engu og eru því á miklu flugi.
Einn áhugaverður möguleiki sem er enn til staðar fyrir KA er að þeir gætu unnið Forsetabikarinn. Valur er í 7. sæti eins og er, með fimm stigum meira þegar tveir leikir eru eftir.

Einn áhugaverður möguleiki sem er enn til staðar fyrir KA er að þeir gætu unnið Forsetabikarinn. Valur er í 7. sæti eins og er, með fimm stigum meira þegar tveir leikir eru eftir.

Fyrir leik
Valsmenn geta haft áhrif á fallbaráttuna
Það er ekkert eftir fyrir Valsara að spila fyrir nema að reyna að enda í 7. sæti og ná þá í forseta bikarinn. Þeir gætu þó reynt að mótivera sig með þeim hætti að þeir geta haft áhrif á fallbaráttuna þar sem KA er enn í mikilli fallhættu. 

Fyrir leik
Besta deildin heilsar!
Komið þið sæl og verið velkomin í beina textalýsingu frá leik Vals og KA í 26. umferð Bestu deildar karla. Leikurinn hefst klukkan 13:00 og verður spilaður á N1-vellinum Hlíðarenda.







