Leik lokið!
Þetta var loka sparkið í leiknum. Skelfileg úrslit fyrir KA menn í fallbaráttunni, en Valur færist nær forsetabikarnum.
94. mín
Klárar þetta endanlega
Dagur Orri Garðarsson
KA menn með alla menn frammi og Valsmenn vinna boltann. Koma boltanum á Dag sem er þá einn gegn markmanni og hann klárar vel.92. mín



92. mín





91. mín
Fjórar mínútur í uppbótartíma
90. mín
InnOrri Sigurður Ómarsson
ÚtLúkas Logi Heimisson
89. mín
Römer í dauðafæri!
Valdimar með spyrnuna en Valsmenn skalla frá. KA menn halda sókninni áfram og boltinn kemur inn í teig. Birgir nær skallanum og hann leggur hann á Römer sem er í dauðafæri en hann nær ekki nógu góðu skoti og þessi fer framhjá.
89. mín
KA fær horn.
87. mín
Lúkas Logi með skotið fyrir utan teig, það var fast en framhjá.
87. mín
InnEmil Nönnu Sigurbjörnsson
ÚtShkelzen Veseli
84. mín
Gengur voða lítið hjá KA mönnum að skapa færi til að gefa sér séns á úrslitum.
83. mín
InnHörður Ingi Gunnarsson
ÚtJakob Franz Pálsson
81. mín
InnBjarki Fannar Helgason
ÚtGuðjón Ernir Hrafnkelsson
81. mín
Gult spjald
Shkelzen Veseli
74. mín
InnSnorri Kristinsson
ÚtJeppe Pedersen
74. mín
InnJakob Héðinn Róbertsson
ÚtAdam Ægir Pálsson
71. mín
Fast skot fyrir utan
Lúkas Logi með þrumuskot fyrir utan teig, beint á Steinþór sem nær þó ekki boltanum í fyrsta en gerir það í annari tilraun.
69. mín
Sláin!!
Aukaspyrna hjá Val og Tryggvi lyftir boltanum inn í teiginn þar sem Nakkim nær skallanum. KA menn heppnir þarna því boltinn skellur í slánni.
68. mín
InnValdimar Logi Sævarsson
ÚtMikael Breki Þórðarson
67. mín
Stefán ver!
Hallgrímur fær boltann vinstra megin í teignum. Hann tekur eina snögga hreyfingu til hliðar og tekur svo skotið á fjær en Stefán sér við honum.
64. mín
Hátt yfir
KA menn skapa ágætis færi eftir aukaspyrnu en Jakob með skotið himinhátt yfir markið.
63. mín
Steinþór ver
Valsmenn með aukaspyrnu og Tryggvi tekur skotið. Það er fast en beint á Steinþór sem kýlir boltann yfir.
61. mín
Gult spjald
Jakob Snær Árnason
59. mín
Brekkan orðin brött fyrir KA menn
Dagur Orri Garðarsson
Dagur vinnur gríðarlega góða varnarvinnu og keyrir svo upp með boltann. Hann leggur boltann á Tryggva sem kemur honum svo aftur á Dag sem tók hlaupið inn fyrir. Dagur er þá einn gegn makmanni og hann tkeur bara vippuna yfir Steinþór.53. mín
Skot af löngu færi
Jakob Franz reynir skotið af svona 30 metra færi, það er fast og frekar hnitmiðað en Steinþór sér við honum.
52. mín
Valsarar næstum búnir að skora aftur
Flott samspil sprengir upp vörn KA manna og Jakob Franz leggur boltan fastan fyrir á Tryggva. Hann tekur skotið úr frábæru færi en KA menn rétt ná að koma sér fyrir skotið.
50. mín
Þvílíkt mark!!
Tryggvi Hrafn Haraldsson
Valur með hornspyrnu sem KA menn skalla frá. Tryggvi nær í lausa boltann fyrir utan teig þar sem hann heldur boltanum aðeins á lofti og tekur svo skotið beint upp í samskeytin!46. mín
Seinni hálfleikur er hafinn!
45. mín
Hálfleikur
Allt jafnt í hálfleik hér á Hlíðarenda. Afar bragðdauft til að byrja með í leiknum en svo lifnaði heldur betur við þessu. Færi á báða bóga og allt ennþá í lausu lofti.
Vonandi heldur það áfram inn í seinni hálfleikinn.
Vonandi heldur það áfram inn í seinni hálfleikinn.
45. mín
Ein mínúta í uppbótartíma
45. mín
Gult spjald
Kristófer Dagur Arnarsson
40. mín
Skallinn rétt framhjá
Valsmenn með aukaspyrnu og Tryggvi lyftir boltanum inn á teig. Nakkim nær skallanum sem fer rétt framhjá stönginni!
39. mín
Gult spjald
Adam Ægir Pálsson
Fer í frekar hressilega tæklingu.38. mín
Bjargað á línu
KA með hornspyrnu á nær og Mikael tekur skallann sem fleytir boltanum áfram. Boltinn fer þá til Andre Romer sem er nánast á marklínu og þarf bara að pota boltanum yfir línuna, en hann fer yfir boltann og nær því ekki og Vals menn ná því að bjarga boltanum frá því að fara í markið á síðustu stundu.
36. mín
Adam í færi!
Boltinn skoppar fyrir framan Birgi sem reynir skotið fyrir utan teig. Hann hittir boltan hins vegar illa en skotið er þá laust og fer beint á Adam sem er þá í dauðafæri inn í teig. Hann var líkast til ekki alveg að búast við boltanum og kemur því hinum ekki alveg undan sér og skotið þá beint á Stefán.
32. mín
Valur í dauðafæri!
Hár bolti inn á teig KA manna og þeir eru í stökustu vandræðum við að eiga við þetta. Boltinn dettur þá bara beint fyrir Veseli sem tekur skotið úr góðu færi en Stubbur ver vel.
30. mín
KA menn jafna leikinn!
Adam Ægir Pálsson (stoðsending: Mikael Breki Þórðarson)
KA menn vinna boltann á miðjum vellinum og Mikael Breki tekur frábæran sprett alla leið að vítateignum. Hann leggur svo boltann til hliðar á Adam, sem keyrir á sinn mann og leggur hann svo fast í nær hornið.23. mín
Eins og þruma úr heiðskýru lofti!
Myles A Veldman
Veldman fær boltann á vinstri kantinum og er að mér sýnist greinilega að reyna að gefa boltann fyrir. Það misheppnast svona frábærlega, þar sem að boltinn svífur yfir haus og hendur Steinþórs í markinu og syngur í netinu á fjær.20. mín
Stöngin!
KA menn byggja upp sókn og Adam reynir hælspyrnu en hittir ekki boltann. Boltinn fer samt af honum og til Jakbos fyrir utan teig sem tekur bara skotið og boltinn skellur í stönginni og fer aftur fyrir.
17. mín
Birgir í færi!
KA menn fá horn, og Mikael Breki lyftir boltanum inn í teig. Úr verður smá skallatennis sem endar með að boltinn dettur fyrir Birgi á vítapunktinum. Hann tekur skotið en nær ekki nógu góðri snertingu á boltann og skotið yfir.
10. mín
Aukaspyrnan framhjá
KA fær aukaspyrnu svona 10-15 metrum frá vítateignum. Hallgrímur tekur spyrnuna en þessi var ekki góð, vel framhjá markinu.
6. mín
Heldur betur ekki, KA menn vinna boltann strax aftur eftir spyrnuna.
6. mín
Þá fá Valsmenn sína fyrstu hornspyrnu. Spurning hvort það gengur betur hjá þeim.
4. mín
Spyrnurnar báðar hins vegar ekki gengið vel. Þessi fer bara beint aftur fyrir.
4. mín
Fín byrjun hjá KA mönnum, þeir sækja sína aðra hornspyrnu á þessum fyrstu mínútum.
1. mín
Leikur hafinn
Elías flautar og leikurinn er kominn af stað!
Fyrir leik
Ég sé KA ekki tapa þessum leik miðað við skakkaföllin hjá Val og hversu lítið er undir hjá þeim. KA(jafntefli ekki með) er 1.9 á Epic.
— Kristalkúlan (@kristalkulan) October 17, 2026
Fyrir leik
Þetta fer að byrja
Eina mínútu yfir ganga leikmenn til vallar, byrjunin seinkar því eitthvað smá.
Fyrir leik
Byrjunarliðin
Chris Brazell þjálfari Vals gerir fjórar breytingar á sínu liði sem tapaði 5-3 fyrir FH í síðustu umferð. Það er breyting á markverði þar sem Stefán Þór Ágústsson kemur í markið á meðan Frederik Schram sest á bekkinn. Þá koma einnig inn Jakob Franz Pálsson, Myles Veldman og Shkelzen Veseli. Hörður Ingi Gunnarsson sest á bekkinn, en Jónatan Ingi Jónsson og Ingimar Torbjörnsson Stöle eru ekki í hóp.
Eiður Smári Guðjohnsen og Hallgrímur Jónasson þjálfarar KA halda liðinu alveg óbreyttu frá 3-0 sigri liðsin gegn Stjörnunni í síðustu umferð.
Eiður Smári Guðjohnsen og Hallgrímur Jónasson þjálfarar KA halda liðinu alveg óbreyttu frá 3-0 sigri liðsin gegn Stjörnunni í síðustu umferð.
Fyrir leik
Dómarinn
Elías Ingi Árnason verður með flautuna í kvöld. Aðstoðarmenn hans verða Jovan Subic og Þráinn Jón Elmarsson, á meðan Pétur Guðmundsson sér um fjórðu dómara verkefnin. 

Fyrir leik
Spáin
Valur 0 - 3 KA
Valsmenn eru bara alveg hættir. KA að berjast fyrir lífi sínu. Þetta verður bara vel sannfærandi hjá KA. Þeir þurfa þennan sigur eins og súrefni. Adam Ægir skorar 2 mörk.
Valsmenn eru bara alveg hættir. KA að berjast fyrir lífi sínu. Þetta verður bara vel sannfærandi hjá KA. Þeir þurfa þennan sigur eins og súrefni. Adam Ægir skorar 2 mörk.
Fyrir leik
Líkindin ekki með KA í liði
Ef það fer eins og veðbankar halda í dag, þá verða KA menn í fallsæti eftir umferðina.
Fyrir leik
Forsetabikar eða fall?
KA menn eru í mikilli fallhættu þar sem þeir eru aðeins með tveimur stigum meira en Þór sem situr í fallsæti einu sæti fyrir neðan KA. Norðanmenn hafa unnið síðustu tvo leiki með þremur mörkum gegn engu og eru því á miklu flugi.
Einn áhugaverður möguleiki sem er enn til staðar fyrir KA er að þeir gætu unnið Forsetabikarinn. Valur er í 7. sæti eins og er, með fimm stigum meira þegar tveir leikir eru eftir.

Einn áhugaverður möguleiki sem er enn til staðar fyrir KA er að þeir gætu unnið Forsetabikarinn. Valur er í 7. sæti eins og er, með fimm stigum meira þegar tveir leikir eru eftir.

Fyrir leik
Valsmenn geta haft áhrif á fallbaráttuna
Það er ekkert eftir fyrir Valsara að spila fyrir nema að reyna að enda í 7. sæti og ná þá í forseta bikarinn. Þeir gætu þó reynt að mótivera sig með þeim hætti að þeir geta haft áhrif á fallbaráttuna þar sem KA er enn í mikilli fallhættu. 

Fyrir leik
Besta deildin heilsar!
Komið þið sæl og verið velkomin í beina textalýsingu frá leik Vals og KA í 26. umferð Bestu deildar karla. Leikurinn hefst klukkan 13:00 og verður spilaður á N1-vellinum Hlíðarenda.








