Leik lokið!
ÍBV tryggir sér 3. sætið í deildinni með sanngjörnum 2-0 sigri á Stjörnunni!
92. mín
InnMilena Mihaela Patru
ÚtFridrikka Marie Clementsen
92. mín
InnÍsafold Dögun Örvarsdóttir
ÚtAllison Patricia Clark
92. mín
InnHrafnhildur K. Kristleifsdóttir
ÚtOlga Sevcova
90. mín
+2 í uppbótartíma.
89. mín
Allison Lowrey er tekin niður og ÍBV fær aukaspyrnu nálægt teig Stjörnunnar hægra megin. Sandra með spyrnuna en Stjarnan hreinsar.
88. mín
Frekar rólegt yfir þessu núna!
84. mín
InnViktoría Skarphéðinsdóttir
ÚtIngibjörg Lúcía Ragnarsdóttir
84. mín
Hrefna með ágætis skottilraun af nokkuð löngu færi sem Guðný ver í horn.
82. mín
Kom fyrirgjöf frá Kristínu Klöru frá hægri á fjærstöngina og Stjarnan setur boltann í eigið mark en búið er að dæma brot á ÍBV.
81. mín
Clark með hornspyrnu fyrir ÍBV og boltinn dettur fyrir Olgu sem er fyrir utan teig og hún tekur skotið sem fer hátt yfir markið.
80. mín
Nanna Sif prjónar sig inn á teiginn og kemur með fyrirgjöf en engin Stjörnukona sem nær að koma sér á boltann og Sandra endar á að hreinsa.
78. mín
Hulda Hrund með sendingu í gegn ætlaða Snædísi en Jessica nær að reka tánna í boltann og hann fer til Guðnýjar.
75. mín
Frábært spil hjá ÍBV. Olga kemur boltanum á Lowrey sem tekur mjög vel á móti honum og setur boltann yfir á nöfnu sína sem er hægra megin á teignum. Skotið frá Clark er hinsvegar máttlaust og Stjörnukonur ná að koma boltanum í burtu.
72. mín
OLGA!!!
Guðný kemur með langan bolta fram og Allison Lowrey flikkar boltanum áfram á Olgu sem er komin ein í gegn. Hún var með boltann á vinstri og tékkaði til hliðar og tekur skot með hægri en Bridgette ver vel frá henni!
71. mín
InnAllison Grace Lowrey
ÚtHelena Hekla Hlynsdóttir
71. mín
InnErla Hrönn Unnarsdóttir
ÚtMagdalena Jónasdóttir
70. mín
Olga reynir að lauma boltanum inn á Fridrikku en sendingin er aðeins of löng og Fridrikka nær ekki til boltans.
69. mín
Hrefna með fyrirgjöf frá hægri vængnum inn á teiginn en Guðný er fyrst á boltann.
68. mín
Andrea Mist með hornspyrnuna fyrir Stjörnuna en Guðný kemur út og grípur boltann.
66. mín
InnVigdís Edda Friðriksdóttir
ÚtMargrét Lea Gísladóttir
63. mín
Edda Dögg með fínustu tilraun. Tekur boltann niður fyrir utan teig og lætur vaða en skotið rétt fram hjá.
61. mín
Fridrikka með skot úr teignum en það fer af Sydney og aftur fyrir.
60. mín
InnHulda Hrund Arnarsdóttir
ÚtMurielle Tiernan
58. mín
ÍBV aftur í færi!
Clark kom aftur með mjög góða sendingu frá vinstri inn á teiginn, en núna á fjær, á Fridrikku sem nær skallanum á markið en stórkostlega varið hjá Bridgette í marki Stjörnunnar!
57. mín
Færi hjá ÍBV!
Kom fyrirgjöf frá vinstri frá Clark á nærsvæðið þar sem Fridrikka er mætt í góðu hlaupi en skot hennar fer stönginni!
52. mín
Sandra með aukaspyrnu inn á teiginn fyrir ÍBV, á Ágústu Maríu, sem nær skallnum en hann er máttlaus og fer aftur fyrir.
50. mín
OLGA í færi!!
Clark fékk boltann á miðsvæðinu og kemur með góða sendingu á Olgu vinstra megin. Olga keyrir inn á teiginn og kemur sér í skotfæri. Hún ætlar að lauma boltanum í fjærhornið en boltinn rétt framhjá markinu!
49. mín
Murielle sendir Snædísi Maríu í gegn en flaggið fór á loft.
47. mín
Kom fyrirgjöf frá vinstri og Snædís María var mætt á nær en skotið fer fram hjá markinu. Snædís strax byrjuð að láta til sín taka.
46. mín
InnAndrea Mist Pálsdóttir
ÚtErika Ýr Björnsdóttir
Tvöföld breyting hjá Stjörnunni í hálfleik!
46. mín
InnSnædís María Jörundsdóttir
ÚtRósa María Sigurðardóttir
Tvöföld breyting hjá Stjörnunni í hálfleik!
45. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Leikurinn er farinn í gang aftur!
45. mín
Hálfleikur
2-0 fyrir ÍBV í hálfleik og þær hafa verið töluvert sterkara liðið í fyrri hálfleik!
43. mín
Edda Dögg með skot lengst utan af velli en það er hátt yfir markið.
41. mín
Murielle fékk boltann inn á teignum og kemur með skotið en ÍBV konur henda sér fyrir það og koma boltanum í burt.
39. mín
Clark kemur ÍBV í 2-0!
Allison Patricia Clark (stoðsending: Ágústa María Valtýsdóttir)
ÍBV vann boltann inn á miðvæðinu og kom löng sendingu á Ágústu sem tekur boltann niður. Hún bíður eftir hlaupi frá Allison Clark. Sendir svo á hana í gegn á hárréttum tímapunkti og Allison klárar örugglega í nærhornið.38. mín
Olga geystist upp vinstri kantinn og kemur boltanum á Fridrikku sem tekur skotið fyrir utan teig en það er töluvert fram hjá markinu.
34. mín
Vel gert hjá Fridrikku inn á miðsvæðinu, tók örugglega út fjóra leikmenn Stjörnunnar og keyrir að teignum. Hún kýs svo að gefa boltann til hægri á Clark en hún er flögguð rangstæð. Hefði líklega verið betri kostur að setja hann til vinstri þarna.
29. mín
Helena Hekla með mjög góðan bolta inn á teig Stjörnunnar en Fridrikka nær ekki að taka boltann niður og færið rennur út í sandinn.
27. mín
Þarna munaði litlu!
Frábærlega gert hjá Clark. Ágústa vann boltann og kemur honum á Clark. Clark brunar upp með boltann og tekur svo skotið sem fer rétt fram hjá markinu.
26. mín
Olga kemur með stungusendingu í gegn á Fridrikku en Bridgette er vel á verði og kemur út úr markinu og nær að hreinsa.
24. mín
Nanna Sif með flott tilþrif vinstra megin. Prjónar sig í gegn og ætlar að koma með fyrirgjöf en vinnur hornspyrnu fyrir Stjörnuna.
20. mín
Olga vann boltann inn á miðsvæðinu nálægt miðjuboganum. Tekur boltann aðeins með sér og reynir svo að setja yfir Bridgette sem var komin langt út úr markinu en hún nær að grípa hann. Skemmtileg tilraun hjá Olgu þarna.
20. mín
Stjarnan með hornspyrnu og kemur hættulegu bolti en Guðný nær að slá boltann í burtu.
19. mín
Clark kemur sér í skotfæri en úr þröngu færi og skotið fer beint á Bridgette. Hún hefði hugsanlega getað sett boltann fyrir þar sem Fridrikka var mætt inn á teiginn.
18. mín
Clark kemur með sendingu í gegn ætlaða Ágústu en Sydney er á undan henni og kemur boltanum frá.
16. mín
Fín tilþrif hjá Ingibjörgu keyrir inn á miðjuna og kemur sér í skotfæri en skotið frekar auðvelt fyrir Guðnýju í marki ÍBV.
12. mín
Olga fékk boltann vinstra megin og nær að koma boltanum fyrir en Stjarnan nær að koma boltanum í burtu.
Boltinn barst svo á Helenu Heklu og hún kom með aðra fyrirgjöf inn á teiginn á Olgu en skallinn frá henni máttlaus og beint á Bridgette.
Boltinn barst svo á Helenu Heklu og hún kom með aðra fyrirgjöf inn á teiginn á Olgu en skallinn frá henni máttlaus og beint á Bridgette.
9. mín
ÍBV leiðir 1-0!
Glæsimark hjá Olgu
Olga Sevcova (stoðsending: Edda Dögg Sindradóttir)
Kom langur bolti inn á teiginn frá Kristínu Klöru. Olga tekur boltann niður og nær fínu samspili með Eddu Dögg. Olga snýr svo með boltann og setur hann laglega í fjærhornið.ÍBV leiðir 1-0!
8. mín
Magdalena með sendingu inn á teiginn en hún er of nálægt markinu og Bridgette handsamar boltann.
5. mín
Hrefna fær boltann hægra megin og kemur með hættulega fyrirgjöf inn á teiginn á fjær á Nönnu Sif en hún fær boltann eiginlega bara í sig og útaf.
5. mín
Ekki mikið búið að gerast fyrstu 5 mínúturnar fyrir utan eina aukaspyrnu sem ÍBV fékk en ekkert varð úr.
4. mín
Jón Óli þjálfari ÍBV spáði 5-5 jafntefli fyrir leik. Vonandi fáum við svona mikið af mörkum í kvöld!
2. mín
ÍBV stillir svona upp:
Guðný
Kristín Klara - Sandra - Jessica - Hekla
Olga - Edda - Magdalena - Fridrikka
Ágústa - Allison Clark
Guðný
Kristín Klara - Sandra - Jessica - Hekla
Olga - Edda - Magdalena - Fridrikka
Ágústa - Allison Clark
1. mín
Stjarnan stillir svona upp:
Bridgette
Eva María - Jakobína - Sydney - Rósa María
Erika Ýr - Margrét Lea - Ingibjörg
Nanna Sif - Murielle - Hrefna
Bridgette
Eva María - Jakobína - Sydney - Rósa María
Erika Ýr - Margrét Lea - Ingibjörg
Nanna Sif - Murielle - Hrefna
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað hér í Eyjum.
Heimakonur hefja leik!
Heimakonur hefja leik!
Fyrir leik
Aðstoðardómarar: Nour Natan Ninir og Heimir Árni Erlendsson. Fjórði dómari: Bryngeir Valdimarsson.
Dómari: Ásmundur Þór Sveinsson

Aðstoðardómarar: Nour Natan Ninir og Heimir Árni Erlendsson. Fjórði dómari: Bryngeir Valdimarsson.
Fyrir leik
Byrjunarlið ÍBV
30. Guðný Geirsdóttir (m) (f)
6. Jessica Jean Hinton
7. Edda Dögg Sindradóttir
10. Kristín Klara Óskarsdóttir
11. Helena Hekla Hlynsdóttir
13. Sandra Voitane
14. Olga Sevcova
15. Magdalena Jónasdóttir
20. Allison Patricia Clark
25. Ágústa María Valtýsdóttir
27. Fridrikka Marie Clementsen
6. Jessica Jean Hinton
7. Edda Dögg Sindradóttir
10. Kristín Klara Óskarsdóttir
11. Helena Hekla Hlynsdóttir
13. Sandra Voitane
14. Olga Sevcova
15. Magdalena Jónasdóttir
20. Allison Patricia Clark
25. Ágústa María Valtýsdóttir
27. Fridrikka Marie Clementsen
Fyrir leik
Byrjunarlið Stjörnunnar
13. Bridgette Nicole Skiba (m)
3. Sydney Anne Parker
4. Jakobína Hjörvarsdóttir
5. Eva Marie Wirtz
8. Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir (f)
16. Nanna Sif Guðmundsdóttir
17. Rósa María Sigurðardóttir
18. Margrét Lea Gísladóttir
19. Hrefna Jónsdóttir
28. Erika Ýr Björnsdóttir
29. Murielle Tiernan
3. Sydney Anne Parker
4. Jakobína Hjörvarsdóttir
5. Eva Marie Wirtz
8. Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir (f)
16. Nanna Sif Guðmundsdóttir
17. Rósa María Sigurðardóttir
18. Margrét Lea Gísladóttir
19. Hrefna Jónsdóttir
28. Erika Ýr Björnsdóttir
29. Murielle Tiernan
Fyrir leik
Besta kvenna - Efri hluti
18:00 Breiðablik-FH (Eikarvöllurinn)
18:00 ÍBV-Stjarnan (Hásteinsvöllur)
18:00 Þróttur R.-Grindavík/Njarðvík (PEPSI völlurinn)
Bestu kvenna lýkur

Besta kvenna - Efri hluti
18:00 Breiðablik-FH (Eikarvöllurinn)
18:00 ÍBV-Stjarnan (Hásteinsvöllur)
18:00 Þróttur R.-Grindavík/Njarðvík (PEPSI völlurinn)



