Fotbolti.net
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Umspil EM U21
Stadio Apostolos Nikolaidis
Mjög góðar - fínasta veður í Aþenu, engin snjókoma
Grikkland U21
Grikkland U21
6 - 5
Ísland U21
Ísland U21
Samtals 7 - 6
0 - 172' Daníel Tristan GuðjohnsenKonstantinos Kostoulas 90'1 - 1120' Viktor Bjarki Daðason (misnotað víti) Anestis Mythou (víti) 120'2 - 12 - 2120' Hilmir Rafn Mikaelsson (víti)Georgios Koutsias (víti) 120'3 - 23 - 3120' Hlynur Freyr Karlsson (víti)Konstantinos Kostoulas (víti) 120'4 - 34 - 4120' Galdur Guðmundsson (víti)Dimitrios Kaloskamis (víti) 120'5 - 45 - 5120' Haukur Andri Haraldsson (víti) Christos Mouzakitis (víti) 120'6 - 5
Dómari: Daniele Chiffi (ITA)
Áhorfendur: Nokkuð margir
Leik lokið!
Grikkir fara á EM
Ansans, þetta er mjög svekkjandi niðurstaða, ótrúlega súrt að tapa í vítaspyrnukeppni.

Grátleg jöfnunarmörk undir lok beggja leikja, flottir leikir hjá íslenska liðinu og grátlegt að liðið sé ekki á leið á EM eftir þessar 210 mínútur.
Grikkland U21
120. mín
5-4 í vítaspyrnukeppninni.

Christos Mouzakitis

Öruggt víti sem sendir Grikkland á EM.
Ísland U21
120. mín
4-4

Haukur Andri Haraldsson

Skorar af öryggi eftir stæla frá Botis í markinu.

Grikkir mega ekki skora úr fimmtu spyrnunni.
Grikkland U21
120. mín
4-3, Grikkland leiðir

Dimitrios Kaloskamis

Gríðarlega öruggt.

Lokaumferðin eftir. Verðum að skora!
Ísland U21
120. mín
3-3

Galdur Guðmundsson

Galdur jafnar, setur Botis í rangt horn. Þetta var fjórða spyrna Íslands.
Grikkland U21
120. mín
3-2, Grikkland leiðir eftir þrjár umferðir

Konstantinos Kostoulas

Lúkas fer í rétt horn en föst spyrna Kostoulas fer framhjá hönd Lúkasar.
Ísland U21
120. mín
2-2

Hlynur Freyr Karlsson

Hlynur jafnar. Botis fer snemma af stað og röltir í rangt horn. Áhugaverðir tilburðir.

Grikkir eiga hins vegar spyrnu til góða.
Grikkland U21
120. mín
2-1, Grikkland leiðir

Georgios Koutsias

Sendir Lúkas í rangt horn.
Ísland U21
120. mín
1-1

Hilmir Rafn Mikaelsson

Gríðarlega öruggt, dúndrar boltanum í hornið.
Grikkland U21
120. mín
1-0, Grikkland leiðir

Anestis Mythou

Skorar af miklu öryggi.
Ísland U21
120. mín
Botis ver

Viktor Bjarki Daðason

Botis fer í rétt horn, ekki gott víti.
120. mín
Vítaspyrnukeppnin að hefjast
Grikkirnir vinna hlutkestið, mikil fagnaðalæti þegar fyrirliðinn bendir í átt að stúkunni þar sem fleiri áhorfendur eru.

Viktor Bjarki tekur fyrsta vítið.
120. mín
Það er vítaspyrnukeppni!
Þetta mun ráðast í vítaspyrnukeppni. Nú snýst þetta um að vera með kaldan haus.
120. mín
120+1
Darraðadans inn á teignum og boltanum hreinsað í hönd Grikkja.
120. mín
Grikkir fá hornspyrnu. 20 sekúndur eftir.
118. mín
Ágúst Orri fer framhjá sínum manni, á fyrirgjöf á fjær og Galdur ætlar að klára en sparkar í Grikkja sem komst á milli. Brot dæmt á Galdur.
117. mín
Áhugaverð tilraun
Christos Almyras reynir bakfallsspyrnu fyrir utan teig en hittir ekki íslenska markið.
116. mín
Grikkir að gera sig líklega en Daníel Freyr verst vel og leysir úr þessu.
115. mín
Rólegt þessa stundina.
112. mín
Galdur vinnur hornspyrnu, sú tíunda sem við fáum. Galdur ætlar sjálfur að taka þessa.

Ekkert markvert kom upp úr henni.
110. mín
Hilmir Rafn vill fá víti.

Ágúst Orri með fyrirgjöf frá vinstri sem Hilmir nær ekki til og hann vill fá eitthvað meira en ekkert fyrir meint brot inn á teignum.

Haukur Andri á svo skot fyrir utan teig sem fer í varnarmann.
109. mín
Skot fyrir utan teig, fínasta skot hjá Grikkjum, en Lúkas ver og heldur boltanum.
106. mín
Lúkas ískaldur inn á eigin vítateig, fíflar leikmann Grikkja og kemur boltanum áfram í spil.
106. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Hilmir Rafn tekur miðjuna.
Grikkland U21
105. mín
Gult spjald

Alexios Kalogeropoulos

Gult spjald fyrir einhver mótmæli áðan.
105. mín
Hálfleikur í framlengingu
Ótrúlegt að íslenska liðið sé ekki að vinna eftir þessa síðustu sókn.
105. mín
HAAAA??? (105+1)
Hvernig skoraði íslenska liðið ekki þarna, ótrúleg sena.

Ágúst Orri með vippu skot/fyrirgjöf í þverslána og Hilmir Rafn nær ekki að pota boltanum yfir línuna. Daníel Freyr á skot með hægri í vanrarmann og Haukur Andri á svo skot sem Botis ver einhvern veginn með tánni í horn.
Ísland U21
102. mín
Gult spjald

Ágúst Orri Þorsteinsson

Ekkert kom úr hornspyrnunni og Ágúst tók á sig gult spjald eftir sprett til baka. Fyrirgjafarstaða fyrir Grikkina.
101. mín
Ísland fær ódýra hornspyrnu. Um að gera að nýta þessa!
Grikkland U21
100. mín
InnDimitrios Keramitsis
ÚtGeorgios Katris
99. mín
Viktor Bjarki með fyrirgjöf eftir sendingu frá Hlyn Frey en Grikkir verjast og skalla í burtu.
97. mín
Koutsias brýtur á Hauki Andra í baráttu þegar Grikkirnir reyndu að sækja hratt. Haukur hristir þetta högg af sér.
96. mín
Skot frá Ágústi Orra eftir sprett frá Viktori Bjarka, tilraunin fer af varnarmanni og aftur fyrir. Hornspyrna fyrir íslenska liðið.

Lúkas gerði vel í aðdragandanum að koma út fyrir teiginn og sópa upp lausan bolta.
95. mín
Hættulegt færi
Skot, eða hálfgerð klippa, frá Georgios Koutsias sem fer blessunarlega beint á Lúkas í markinu.
95. mín
Hættuleg sókn hjá Grikkjum en Júlíus Mar kemst fyrir og hreinsar í innkast.
93. mín
Ágúst Orri gerir vel og vinnur hornspyrnu. 6-5 í hornum Íslandi í vil. Ekki fengið neitt úr hornspyrnunum í dag.

Aukaspyrna dæmd um leið og Daníel sparkaði í boltann til að taka hornið.
91. mín
Framlenging hafin
Grikkir byrja með boltann.

Reyna að skjóta á íslenska markið en skotið er framhjá.
90. mín
Framlengt!
Við erum á leiðinni í framlengingu, 2x15 mínútur.
90. mín
90+4
Mythou með skot í varnarmann inn á íslenska teignum. Lítið eftir.
Grikkland U21
90. mín
Grikkir að jafna (90+1)

Konstantinos Kostoulas (stoðsending: Anestis Mythou)

Nei nei nei nei

Þetta er svo svekkjandi. Fyrirgjöf frá vinstri sem Mythou kemst í og á fjærstönginni lúrir bakvörðurinn Kostoulas og skallar boltann í netið af stuttu færi.

Fjórar mínútur eftir.
90. mín
Fimm mínútur í uppbótartíma!
Fimm mínútum frá EM!
90. mín
Hliðarnetið!
Hilmir Rafn með skot í hliðarnetið úr fínu færi eftir frábæran undirbúning frá Viktori Bjarka og Daníel Frey.
90. mín
Sending inn á íslenska teiginn sem Lúkas kemur út í og grípur.
89. mín
Grikkirnir mjög ósáttir út af innkasti sem þeir töldu sig eiga að fá, dómarinn skipti um skoðun og gaf Íslandi innkastið. Það hjálpaði þó lítið því Grikkir fengu svo strax innkast.
88. mín
Viktor Bjarki gerir vel eftir langa sendingu frá Júlíusi. Er svo stöðvaður en fær innkast.
86. mín
Grikkir eiga aukaspyrnu á hægri kantinum.

Spyrnan frá Christos Mouzakitis beint í hendurnar á Lúkasi sem heldur boltanum.
Ísland U21
84. mín
InnLogi Hrafn Róbertsson
ÚtTómas Orri Róbertsson
Ísland U21
84. mín
InnHilmir Rafn Mikaelsson
ÚtDaníel Tristan Guðjohnsen
84. mín
Skalli yfir frá Georgios Koutsias eftir fyrirgjöf hægra megin úr teignum.
83. mín
Lúkas kýlir boltann og Grikkir fá aðra hornspyrnu.

Íslenska liðið nær svo að hreinsa seinni spyrnuna í burtu.
82. mín
Grikkir fá hornspyrnu sem Christos Mouzakitis tekur.
81. mín
Verður hann hetjan í kvöld?
Daníel Tristan átti mjög slaka vítaspyrnu í fyrri leik liðanna en eins og er hefur hann skorað eina mark leiksins í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
80. mín
Viktor Bjarki nálægt því að sleppa í gegn en Botis kemur, líkt og áður, langt út úr markinu og sópar upp.
77. mín
Daníel Freyr með hornspyrnu en Grikkir hreinsa í burtu.
Grikkland U21
76. mín
Inn Anestis Mythou
ÚtChristos Alexiou
Síðasta skipting Grikkja
75. mín
Takk fyrir allt Aron Einar
Ég ætla misnota aðstöðu mína aðeins og þakka Aroni Einari Gunnarssyni fyrir allt sem hann hefur gert fyrir íslenska landsliðið og íslenskan fótbolta. Gamli fyrirliðinn var að koma inn á í sínum 113. og síðasta landsleik en A-landsliðið er að spila gegn Lúxemborg á Laugardalsvelli. Hann fór með U21 á lokamót EM 2011. Takk Aron.
Ísland U21
73. mín
InnViktor Bjarki Daðason
ÚtBenoný Breki Andrésson
Ísland U21
72. mín
ALVÖRU NEGLA!!!

Daníel Tristan Guðjohnsen

Boltinn berst til Daníels fyrir utan D-bogann og framherjinn smellhittir boltann, þrumuskot í fjærhornið sem Botis á ekki séns í að verja!

Geggjað skot geggjað mark og Ísland leiðir!

Þetta var frekar gegn gangi leiksins.

Strákarnir eru 20 mínútum frá EM!
72. mín
Galdur með skot sem fer í varnarmann.
68. mín
Botis kemur mjög langt út úr gríska markinu og skallar í hnakkann á gríska fyrirliðanum sem liggur eftir. Skrítið atvik eftir langa sendingu upp völlinn frá íslenska liðinu.
68. mín
Færi!
Boltinn hrekur fyrir Katris eftir tilraun frá Grikkjum en sem betur fer þá hittir varnarmaðurinn ekki íslenska markið.
Grikkland U21
67. mín
Inn Christos Almyras
ÚtSotirios Kontouris
Næstsíðasta skipting Grikkja
Ísland U21
66. mín
Gult spjald

Júlíus Mar Júlíusson

Brýtur á Georgios Koutsias úti á vinstri kantinum.
Ísland U21
66. mín
InnHaukur Andri Haraldsson
ÚtFreyr Sigurðsson
Ísland U21
66. mín
InnGaldur Guðmundsson
ÚtAmin Cosic
64. mín
Séns!
Amin Cosic skyndilega að sleppa í gegn eftir snöggt innkast frá Daníel en Katris bjargar inn á markteig.

Ísland á horn. Fyrirgjöfin beint í hendurnar á markmanni Grikkja.
64. mín
Haukur Andri og Galdur eru að fara koma inn á.
63. mín
Hlýtur að styttast í að Galdur Guðmundsson komi við sögu, lítið að frétta hjá íslenska liðinu sem hefur klárlega verið undir í byrjun seinni.
Grikkland U21
62. mín
InnAdriano Bregou
ÚtKonstantinos Gkoumas
61. mín
Hlynur Freyr gerir vel í að vinna boltann, reynir svo fyirirgjöf og fær horn.

Hornspyrnan frá Daníel Frey beint á fremsta mann sem hreinsar.
59. mín
Dómari leiksins í sendingarleið Grikkja og fær boltann í sig, stöðvar sóknina.
Grikkland U21
57. mín
Gult spjald

Konstantinos Gkoumas

Rennir sér og fer í Lúkas sem var kominn með hendur á boltann. Klaufagangur í öftutu línu hjá íslenska liðinu og þarna munaði mjóu.
Ísland U21
55. mín
Gult spjald

Daníel Tristan Guðjohnsen

Ósammála hornspyrnudómnum og fær gult fyrir tuð.
55. mín
Meiri ákefð í gríska liðinu og okkar strákar aðeins kærulausir á boltanum.

Grikkir eiga núna hornspyrnu.
53. mín
Fín sókn hjá íslenska liðinu sem endar með fyrirgjöf sem Botis handsamar.
51. mín
Georgios Kyriopoulos kemst í boltann við vítateig Íslands en þrumar boltanum framhjá. Grikkir byrja seinni hálfleikinn betur.
51. mín
Júlíus Mar brýtur af sér og er líklega kominn á hættusvæði, korter í gult þetta brot.
50. mín
Amin svolítið klaufalegur í byrjun hálfleiks, missti boltann illa áðan og á núna misheppnaða móttöku.
46. mín
Lúkas Petersson rennur en nær að standa upp og handsama boltann áður en Grikki kemst í hann.
46. mín
Daníel Tristan sparkar seinni hálfleikinn af stað
Grikkland U21
46. mín
Inn Georgios Kyriopoulos
Út Stavros Pnevmonidis
Tvöföld breyting í hálfleik
Grikkland U21
46. mín
InnDimitrios Kaloskamis
ÚtAntonios Papakanellos
45. mín
Hálfleikur
Tölfræði í hálfleik
Skot (á markið): 6(1)-2(1)
Horn: 2-2
Brot: 1-7
Með bolta: 45-55%
45. mín
Hálfleikur
Allt jafnt í hálfleik
Engu bætt við, allt í járnum.

Tilfinning er sú að íslenska liðið hafi átt fleiri upphlaup. Staðan í góðum færum er nokkuð jöfn.
44. mín
Smá bras á Davíð Helga, laus sending, en það leysist úr þessu aftast hjá íslenska liðinu.
43. mín
Svo nálægt
Ágúst Orri gerir mjög vel úti hægra megin, kemst inn á teiginn og reynir að finna samherja á fjærstönginni en Grikkir bjarga. Þetta hefði orðið mark hjá Benoný.
42. mín
Vel spilað úti hægra megin, Ágúst Orri með fyrirgjöf en Grikkirnir ná að hreinsa.

Álitleg skyndisókn frá Grikkjum en hún rennur svo út í sandinn.
41. mín
Tómas Orri með geggjaðan snúning á miðjunni, skemmtileg móttaka en svo kom misheppnuð sending frá næsta manni.
38. mín
Vantaði herslumuninn svo Daníel Tristan kæmist í mjög gott skotfæri eftir gott spil á vinstri kantinum, Grikkirnir stóðu vaktina vel þarna.
35. mín
Hætta inn á íslenska teignum en Júlíus Mar gerir mjög vel og kemur í veg fyrir dauðafæri.
33. mín
Mjög vel mætt á vellinum
Mér sýnist vera nokkuð mörg þúsund manns í stúkunni hjá Grikkjum, enda sæti á EM undir.
32. mín
Íslenska liðið í álitlegri hraðri sókn en sendingin frá Amin Cosic fyrir aftan samherjana.

Ágúst Orri á svo fyrirgjöf af hægri kantinum sem fer í hendurnar á Botis í marki Grikkja.
30. mín
Góður kafli hjá íslensku strákunum, menn eru að tengja vel saman.
29. mín
Júlíus Mar gerir vel að stöðva sókn Grikkja, reynir vel við boltann og sleppur því við spjald.
28. mín
Varsla!
Freyr Sigurðsson með frábæra fyrirgjöf á fjærstöngina af vinstri kantinum, finnur Benoný Breka sem á góðan skalla en ekki alveg nægilega góðan því markvörðurinn nær að verja. Mjög vel varið.

Ísland fær annað horn en ekkert kom úr því.
27. mín
Frábærir taktar hjá Ágústi Orra
Kemst framhjá manninum sínum, upp að endamörkum, á flotta fyrirgjöf sem markvörðurinn er i brasi með og svo er hreinsaða aftur fyrir.

Amin tók hornspyrnuna en ekkert kom upp úr henni.
24. mín
Smá bras aftast hjá Grikkjum en það leysist úr því.
21. mín
Langskot frá Grikkjum sem er aldrei líklegt og fer framhjá.
20. mín
Georgios Koutsias með skot sem fer hátt yfir eftir sendingu frá Antonios Papakanellos.
20. mín
Treyja Benonýs rifin en ekkert dæmt
Augljóst peysutog á hægri kantinum en dómarar leiksins dæma ekkert. Það er komið gat á treyju Benonýs eftir þetta.
18. mín
Núna fá Grikkirnir svo eina ódýra aukaspyrnu á miðjum velli, brot dæmt á Daníel Frey.
17. mín
Daníel Freyr með aukaspyrnuna, finnur Daníel Tristan á fjærstönginni en hann er dæmdur brotlegur fyrir bakhrindingu.
Grikkland U21
16. mín
Gult spjald

Christos Mouzakitis

Brýtur á Tómasi Orra og fær fyrsta gula spjald leiksins.
15. mín
Ég verð að segja það að mér finnst Grikkirnir mikið leita í grasið og eru að reyna fiska brot á Íslendinga. Vel dæmt til þessa.
13. mín
Grikkir með aukaspyrnu, skalli að marki íslenska liðsins sem Lúkas slær yfir og Grikkir fá horn. Ekkert kom úr þessari hornspyrnu.
11. mín
Hættulegt færi!
Christos Alexiou í dauðafæri!

Frábær undirbúningur hjá Gkoumas, fyrirgöf á fjær en Alexiou hittir sem betur fer ekki markið.
10. mín
Tómas Orri með misheppnað skot eftir langt innkast frá Hlyni Frey. Brot dæmt á íslenska liðið á meðan boltinn var í loftinu.
10. mín
Nokkuð róleg byrjun á leiknum, mikið undir og engir sénsar teknir.
7. mín
Grikkir vilja fá aukaspyrnu við vítateigslínuna og þeir hafa sitthvað til síns máls.

Fá svo hornspyrnu þar sem skot fer af varnarmanni íslenska liðsins og aftur fyrir.

Grikkir svo dæmdir brotlegir inn á teignum.
5. mín
Fyrsta tlraun leiksins
Amin Cosic gerir vel úti vinstra megin, boltinn fer svo yfir á hinn kantinn áður en Amin fær boltann aftur, frá Frey Sigurðssyni, og lætur vaða úr þröngri stöðu vinstra megin úr teignum. Skotið ekki nálægt því að fara á rammann.
1. mín
Leikur hafinn
Grikkland byrjar með boltann
Fyrir leik
Þjóðsöngvum lokið og leikar fara að hefjast
Koma svo strákar!

Ísland spilar í hvítum treyjum og Grikkir í bláum.
Fyrir leik
Búið að opinbera byrjunarliðin
Það eru þrjár breytingar á íslenska liðinu.

Hlynur Freyr Karlsson kemur inn fyrir nafna sinn, Hlyn Þórhallsson. Þá koma þeir Benoný Breki Andrésson og Amin Cosic inn fyrir þá Viktor Bjarka Daðason og Galdur Guðmundsson. Miðað við skýrslu UEFA kemur Ásgeir Orri Magnússon inn á bekkinn fyrir Halldór Snæ Georgsson. Júlíus Mar Júlíusson ber fyrirliðabandið líkt og í fyrri leiknum.

Mynd: Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fyrir leik
MD-1 æfingin á myndbandi
Fyrir leik
Myndir frá æfingunni í gær
Fyrir leik
Létt yfir strákunum okkar á leikdegi
Fyrir leik
Í beinni á Sýn Sport
Stuðst verður við útsendingu Sýnar frá leiknum. Útsendingin á Sýn Sport 2 hefst 16:50.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kristinn Kjærnested lýsir leiknum
Fyrir leik
Spilað á elsta velli Grikklands
Leikurinn fer fram á Apostolos Nikolaidis Stadium sem er elsti leikvangur sem spilað er á í Grikklandi. 16 þúsund áhorfendur komast fyrir í stúkunni.

Leikvangurinn hefur verið heimavöllur Panathinaikos en félagið er að færa sig á glænýjan völl. Panathinaikos spilar þó enn stundum á vellinum ásamt því að spila á Ólympíuleikvanginum. Félagið færir sig svo á glænýjan leikvang næsta sumar.
Mynd: EPA
Fyrir leik
Býst við öðruvísi grísku liði
Lúðvík Gunnarsson er þjálfari U21 landsliðsins. Hann var til viðtals á miðlum KSÍ í gær og sagðist búast við öðruvísi grísku liði en í fyrri leiknum.

Fyrir leik
Dómari sem Mourinho fór ófögrum orðum um
Mynd: EPA

Dómarateymið kemur frá Ítalíu og það er Daniele Chiffi sem er með flautuna.

Árið 2023 fékk Jose Mourinho, þá stjóri Roma, bann og sekt fyrir ummæli um Chiffi.

„Þetta er versti dómari sem ég hef séð á mínum ferli," sagði Mourinho. „Trúið mér, ég hef lent í mörgum slæmum dómurum. Hann er hræðilegur og myndar engin mannleg tengsl við neinn. Hann er með enga samkennd."

Fyrir leik
Yrði í þriðja sinn sem Ísland kæmist á EM
Með sigri í dag kemst Ísland í þriðja sinn á lokamót U21 liða. Fyrst komst liðið á lokamótið í Danmörku árið 2011 og var það lið grunnurinn að Gullkynslóðinni. Svo komst liðið aftur á lokamótið 2021 og spilaði þá í Ungverjalandi.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Fyrir leik
Velkomin til Aþenu
Verið þið velkomnir lesendur góðir í beina textalýsingu frá leik Grikklands og Íslands. Um seinni leik liðanna er að ræða í umspili um sæti á EM U21 árs liða.

Fyrri leikurinn endaði með 1-1 jafntefli á Pepsi vellinum á laugardag, en sá leikur fór fram í snjókomu á fimmtudag. Hilmir Rafn Mikaelsson kom Íslandi yfir undir lok venjulegs leiktíma en varð svo í uppbótartíma fyrir því óláni að skora sjálfsmark.

Búist er við talsvert betra veðri í Aþenu í dag, eða um 17 gráðu hita.





Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.