Fotbolti.net
Gunnar Karl Haraldsson
Gunnar Karl Haraldsson
Pepsi deild karla
Hásteinsvöllur
Rigning á köflum og leiðindar vindur
ÍBV
ÍBV
0 - 2
Valur
Valur
0 - 111' Sigurður Egill Lárusson0 - 245' Patrick Pederson84' Haukur Páll Sigurðsson
Dómari: Þorvaldur Árnason
Áhorfendur: 324
Myndir: Eyjafréttir
Leik lokið!
Hundleiðinlegum leik lokið hér á Hásteinsvelli þar sem Valsmenn taka öll 3 stigin heim á Hlíðarenda.

Eyjamenn reyndu hvað þeir gátu en vantaði allan kraft og ákveðni í aðgerðir þeirra, vörnin slök á köflum.

Það má segja að veðrið hafi spilað stórt hlutverk í þessum leik og því var lítið um fótbolta hér í dag.

Ég þakka fyrir mig, god bless.
- J.Norðfjörð
90. mín
Lucas kemst einn í gegn gegn Guðjóni í markinu, Guðjón stekkur eins og köttur á boltann og bjargar þessu.

Glæsilegt hjá Guðjóni.
Valur
88. mín
InnAndri Fannar Stefánsson
ÚtArnar Sveinn Geirsson
Valur
87. mín
InnStefán Ragnar Guðlaugsson
ÚtIndriði Áki Þorláksson
86. mín
Ian Jeffs nær góðum bolta fyrir markið á Gunnar Má sem reynir hælspyrnu, boltinn fer hægt framhjá markinu
Valur
84. mín
Rautt spjald

Haukur Páll Sigurðsson

Tekur \'\'rugby\'\' tæklingu á Gunnar Má í slow-motion
(Þetta var svo hægt)
Virkilega heimskulegt hjá Hauk.
83. mín
Gunnar Már braut á sér í teig Valsmanna með því að standa fyrir Fjalari í markinu og reyna ná til boltans
Valur
80. mín
InnLucas Ohlander
ÚtBjarni Ólafur Eiríksson
Bjarni lenti í árektri við leikmann eyjamanna og fer hér haltrandi af velli
78. mín
*Ótengt þessum leik*
Árni Vilhjálmsson var að koma Blikum í 2-0 gegn KR, þar eru 10 mínútur eftir og stefnir allt í það að KR-ingar verða ekki meistarar í dag.
72. mín
Valsmenn sækja og sækja á mark eyjamanna, Arnar Sveinn reynir skot sem fer af varnarmanni og í horn,

Sigurður Egill tók spyrnuna en ekkert varð úr henni.
ÍBV
71. mín
InnAaron Spear
ÚtArnar Bragi Bergsson
69. mín
Magnús Már tekur spyrnuna og neglir þessum bolta niður í herjólfsdal.

*Þess má geta að það eru tæpir 11 mánuðir í þjóðhátíð.
68. mín
Valsmenn fá hér aukaspyrnu 35 metrum frá marki með vind
63. mín
Arnar Bragi tók hornspyrnu sem ÍBV náði sér í, sendi boltann fast fyrir teiginn á hausinn á Brynjari Gauta sem náði að stýra honum vel í hornið en þar var Magnús Már sem bjargaði á línu
61. mín
Valsmenn verjast vel og halda eyjamönnum ágætlega frá markinu, eyjamenn reyna að spila sig í gegnum þetta en virðist erfitt
55. mín
Sigurður Egill á hér fínt skot sem virtist stefna í bláhornið en Guðjón skutlar sér á eftir þessum og bjargar glæsilega
51. mín
Fín tilraun hjá ÍBV, Jón Ingason sendir glæsilegan bolta beint á Gunnar Má sem \'\'kassar\'\' hann niður á Matt Garner sem tekur skot framhjá.
48. mín
Indriði á góðan skalla á mark eyjamanna, Guðjón Orri ver glæsilega í horn,

Það tók enginn eftir því hver tók hornspyrnuna en hún endaði í fanginu á Guðjóni.

47. mín
Eyjamenn byrja af miklum krafti, keyra upp vinstri kantinn trekk í trekk
46. mín
Seinni hálfleikurinn er farinn af stað, valsmenn byrja hér með boltann og fá einnig vindinn í bakið
ÍBV
46. mín
InnGuðjón Orri Sigurjónsson
ÚtDavid James
Sérstök skipting hér á ferð
ÍBV
46. mín
InnVíðir Þorvarðarson
ÚtGunnar Þorsteinsson
Eyjamenn gera breytingu í hálfleik, styrkja sóknina
45. mín
Búið að flauta fyrri hálfleikinn af, leikurinn ekki búinn að vera mikið fyrir augað og hafa valsmenn nýtt sín tvö tækifæri mjög vel.

Sjáumst eftir 15 mín með vonandi betri fótbolta hér í seinni hálfleik ;)
Valur
45. mín
MAAAARK!

Patrick Pederson (stoðsending: Arnar Sveinn Geirsson)

Bolti inn fyrir frá ég sá ekki hverjum, en þar er Arnar Sveinn mættur og leggur hann á Patrick Pederson sem klárar þetta glæsilega meðfram jörðu.

Slakur varnarleikur hjá eyjamönnum!

0-2 fyrir Val.
44. mín
Stórhættuleg sending inn á teig eyjamanna frá Arnari Svein, boltinn fer í gegnum alla og þannig endar þessi sókn
40. mín
Jæja loksins eitthvað að gerast, eyjamenn fá hér hornspyrnu,

Og vindurinn tekur spyrnuna með sér niður í herjólfsdal, ekkert varð úr þessu.
35. mín
Sigurður Egill tekur aukaspyrnu rétt fyrir utan teig eyjamanna, sendir flottan bananabolta inn í teig á Maatar sem er síðan flaggaður rangstæður
32. mín
Rosalega lítið sem ég get skrifað um þennan leik þessa stundina...
23. mín
Patrick á hér hörkuskot á mark eyjamanna, David James ver þetta vel.

Valsmenn tóku síðan slaka hornspyrnu í kjölfarið sem eyjamenn hreinsa langt í burtu
21. mín
Ekkert að frétta í þessum leik eins og er, boltinn meira útaf en inná!
16. mín
Eyjamenn sækja stíft þessa stundina, rétt í þessu átti Tonny flotta sendingu á nærstöng, beint á Eið Aron sem nær ekki nógu miklum kraft í skallann sem endar í fanginu á Fjalari í markinu.
Valur
11. mín
MAAAARK!

Sigurður Egill Lárusson (stoðsending: Indriði Áki Þorláksson)

Flott sókn hjá Valsmönnum, kom upp úr þurru þar sem þeir keyrðu hratt upp hægri kantinn og fá síðan frítt skot sem þeir nýta vel og örugglega
10. mín
Jón Ingason tekur fína hornspyrnu á fjærstöng, Fjalar stekkur hæst í teignum og handsamar þennan bolta
7. mín
Eyjamenn komast hér í fína sókn, Gunnar Þorsteinsson sendir góða sendingu inn á teig á Ian Jeffs sem síðan hamrar/skýtur fast á markið en þar ver Fjalar Þorgeirsson glæsilega með \'\'einari\'\'
5. mín
Eyjamenn spila vel sín á milli með vindinn í bakið
2. mín
Liðin keppast um að halda boltanum, mikill vindur kemur í veg fyrir að það sé að fara gerast
1. mín
Eyjamenn byrja með boltann og byrja einnig með vindi
Fyrir leik
Liðin ganga inn á völlinn sem lítur mun betur út í dag en 3 dögum, þetta er að byrja!
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru nú farin inn í klefa, ískalt úti og 10 mínútur í leik
Fyrir leik
Leiðinlegur vindur og rigning á köflum hér í eyjum, týpískt.
Fyrir leik
Ian Jeffs kemur inn í lið ÍBV fyrir Víði Þorvarðarson en sá fyrrnefndi kom inn á sem varamaður og skoraði sigurmarkið gegn Stjörnunni fyrr í vikunni.

Hjá Val er Daniel Craig Racchi fjarverandi auk þess sem Lucas Ohlander fer á bekkinn. Sigurður Egill Lárusson og Kristinn Freyr Sigurðsson koma inn.
Fyrir leik
Góðan og blessaðan!

Hér verður bein textalýsing frá leik ÍBV og Vals í frestuðum leik liðanna í Pepsi-deild karla. Um er að ræða leik í 18. umferð en honum var frestað vegna veðurs á dögunum.

ÍBV er fyrir leikinn í dag með 29 stig í fimmta sæti, tveimur stigum á undan Val.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.