Fotbolti.net
02.09.26 - 10:42
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Gunnar Vatnhamar seldur til Vejle (Staðfest) - „Mikill stríðsmaður og sigurvegari"

Einn besti leikmaður Bestu deildarinnar frá komu sinni

Magnaður með Víkingum.

Magnaður með Víkingum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vejle kynnti í morgun Gunnar Vatnhamar sem nýjan leikmann félagsins en hann er keyptur frá Víkingi Reykjavík hvar hann hefur spilað í þrjú og hálft ár og verið einn allra besti leikmaður Íslandsmótsins. Hann skrifar undir þriggja ára samning við danska B-deildar liðið.

Það var Fótbolti.net sem sagði frá því að Gunnar væri á leið til Vejle fyrir tæpum mánuði síðan.

Hjá Víkingi vann Gunnar þrjá stóra titla; tvo Íslandsmeistaratitla og einn bikarmeistaratitil og kveður liðið á toppi Bestu deildarinnar. Hann var í liði ársins hér á Fótbolta.net öll árin. Víkingur keypti hann af Víkingi Götu í Færeyjum skömmu fyrir mót 2023.

„Eins og ég hef sagt áður þá erum við fyrst og fremst að kveðja góða persónu, hann lagði líf sitt og sálu í verkefnið. Hann er góð fyrirmynd fyrir aðra leikmenn hvernig á að bera sig á æfingum og utan æfinga. Það verður klárlega mikill söknuður af þessum mikla stríðsmanni og sigurvegara," sagði Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, um Gunnar fyrir leikinn gegn KR.
Gunnar Vatnhamar á förum frá Víkingi
TENGT EFNI

Gunnar Vatnhamar á förum frá Víkingi

Gunnar er færeyskur landsliðsmaður sem lék samtals 119 leiki fyrir Víking og skoraði í þeim 12 mörk.

Vejle féll úr dönsku úrvalsdeildinni fyrir rúmu ári síðan.




Verður númer 15 hjá Víkingi.

Verður númer 15 hjá Víkingi.

Canon

Mynd: Carl Forssling/Vejle

Gunnar Vatnhamar seldur til Vejle (Staðfest) - „Mikill stríðsmaður og sigurvegari"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gunnar Vatnhamar seldur til Vejle (Staðfest) - „Mikill stríðsmaður og sigurvegari"
Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.