Fotbolti.net
03.08.26 - 21:50
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Gunnar Vatnhamar á förum frá Víkingi

Hefur verið í liði ársins hjá Fótbolta.net öll tímabilin á Íslandi.

Hefur verið í liði ársins hjá Fótbolta.net öll tímabilin á Íslandi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gunnar Vatnhamar er samkvæmt heimildum Fótbolta.net á förum frá Víkingi og á leið til danska félagsins Vejle.

Færeyski landsliðsmaðurinn er og hefur verið lykilmaður í liði Víkings frá komu sinni frá uppeldisfélaginu Víkingi Götu í Færeyjum fyrir tímabilið 2023.

Hann er 31 árs miðvörður sem getur einnig spilað sem varnarsinnaður miðjumaður. Hann hefur tvisvar sinnum orðið Íslandsmeistari með Víkingi og einu sinni unnið Mjólkurbikarinn. Hann er samningsbundinn Víkingi út 2027.
Óvíst er hvenær Gunnar yfirgefur Víkinga. Leikjadagskráin hjá Íslandsmeisturunum er þétt þessa dagana, liðið er á leið í einvígi gegn svissnesku meisturunum í Thun og á milli Evrópuleikjanna er deildarleikur gegn ÍBV þar sem fyrirliðinn og félagi Gunnars í hjarta varnarinnar, Oliver Ekroth, verður í leikbanni.

Vejle er í næstefstu deild Danmerkur eftir að hafa fallið úr úrvalsdeildinni í vor. Liðið er með fjögur stig eftir tvær umferðir.

Erlingur á förum og Kjartan Kári í Víkina?
Það verður að teljast ansi líklegt að Víkingur reyni að fá inn mann í hópinn í stað Gunnars en félagaskiptaglugginn í Bestu deildinni er opinn út 12. ágúst.

Heyrst hefur af því að Erlingur Agnarsson, sem hefur verið í takmörkuðu hlutverki á tímabilinu, gæti verið á förum fyrir lok gluggans. Hann hefur verið orðaður við FH og Keflavík.

Heyrst hefur af mögulegum skiptidíl milli Víkings og FH þar sem Erlingur færi í FH og Kjartan Kári Halldórsson færi í Víking. Ef af yrði þá fengi FH einnig væna greiðslu frá Víkingi. Vængmaðurinn Kjartan Kári hefur áður verið orðaður við Víking.

Í síðustu viku varð Víkingur fyrir áfalli þegar vængmaðurinn Óskar Borgþórsson ökklabrotnaði og hnéskel Tariks Ibrahimagic fór úr lið. Óskar verður frá út tímabilið og Tarik spilar ekki næstu níu mánuðina hið minnsta.
Gunnar Vatnhamar á förum frá Víkingi
Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Gunnar Vatnhamar á förum frá Víkingi
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.20+4651
2KR20+2743
3Fram20+1443
4Breiðablik20+530
5Keflavík20-328
6ÍA20-426
7Stjarnan20-1024
8Valur20-723
9FH20-1218
10ÍBV20-1217
11KA20-1416
12Þór20-3015
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.