03.09.26 - 15:19
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Kári Árna: Hef aldrei vitað annað eins

Sveinn Gísli kom inn í liðið gegn KR en meiddist illa undir lok leiks.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gunnar Vatnhamar er farinn til Danmerkur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Róbert Orri kom inn á fyrir Svein Gísla gegn KR.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sölvi Stefánsson er að koma til baka eftir krossbandsslit.

„Ég hef aldrei vitað annað eins, en þetta er ástæðan fyrir því að við erum með stóran hóp," segir Kári Árnason, yfirmaður fótboltamála hjá Víkingi, við Fótbolta.net í dag.
Hann var spurður út í stöðuna á hópnum og sérstaklega þegar kemur að miðvörðum, en Gunnar Vatnhamar var seldur til danska félagsins Vejle og Sveinn Gísli Þorkelsson, sem kom inn í liðið fyrir Gunnar í leiknum gegn KR, handarbrotnaði undir lok leiks og verður líklega frá út tímabilið.
Kári segir að Róbert Orri Þorkelsson sé klár í slaginn og sé líklega næstur í röðinni. Það verður þó þjálfarinn Sölvi Geir Ottesen sem velur liðið.

TENGT EFNI
Ungversku meistararnir vildu fá Svein Gísla - „Það er alltaf næsti gluggi"
„Robbi er klár, kom inn á í síðasta leik og við vitum náttúrulega hvað hann getur. Svo erum við með Sölva Stefánsson, ungan leikmann sem hefur spilað mínútur með 2. flokki og staðið sig vel. Það er ár frá því að hann lenti í sínu slysi. Það getur vel verið að hann taki einhverjar mínútur."
„Viktor Örlygur hefur leyst þessa stöðu líka, svo hafa Davíð Atla og Kalli (Karl Friðleifur) líka spilað miðvörð. Þetta reddast alveg, en Robbi er næstur inn."
Vel mannaðir upp á framtíðina
Hvernig metið þið stöðuna upp á veturinn eftir að Gunnar fór, eruð þið að fara skoða varnarmenn fyrir næsta tímabil?
„Nei, við viljum vera með fjóra hverju sinni og við erum með Gilla (Svein Gísla), Oliver (Ekroth), Róbert og svo er Sölvi mjög efnilegur. Hann og Davíð Helgi eru tveir af efnilegustu hafsentum landsins. Við vitum ekki hvað verður með lánið hans Davíðs (til Lyngby), en ég reikna nú með því að þeir nýti sér kaupréttinn eða að eitthvað annað lið kemur inn og kaupir hann. Með Davíð erum við með fimm hafsenta sem allir eru mjög góðir, við ættum því að vera þokkalega vel staddir, en ef við missum einhvern þá þurfum við að endurskoða það."
„Það er ekkert á hverju ári sem þú lendir í svona meiðslahrinu eins og við höfum lent í á þessu tímabili. Það er ekkert hægt að vera alltaf með 30 manns í leikmannahóp," segir Kári.
Í öðrum stöðum á vellinum eru þeir Óskar Borgþórsson, Tarik Ibrahimagic og Elías Már Ómarsson meiddir og verða ekki meira með á tímabilinu.