Fotbolti.net
03.09.26 - 14:51
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Ungversku meistararnir vildu fá Svein Gísla - „Það er alltaf næsti gluggi"

Úr fyrri leiknum gegn Györ.

Úr fyrri leiknum gegn Györ.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ungversku meistararnir í Györ, sem Víkingur sló út í forkeppni Meistaradeildarinnar, vildu kaupa Svein Gísla Þorkelsson af Víkingi í sumar. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net hafði ónefnt félag í Skandinavíu sömuleiðis áhuga á varnarmanninum stæðilega.

„Það var áhugi og tékkað á okkur varðandi Gilla (Svein Gísla). En þá var búið að selja Gunnar og við áttum ágætis spjall um að við gætum ekki selt Gilla líka. Nú væri staðan sú að við þyrftum að fókusa á liðið, hann er lykilmaður og fórum yfir að það myndi ekki ganga upp á þeim tímapunkti. En síðan getur ýmislegt breyst. Áhuginn á ekkert að dvína nema einhver sé fundinn í staðinn. Það getur allt gerst eftir tímabilið. Hann er búinn að sýna gæði og það gæti eitthvað gerst í janúar," segir Kári Árnason sem er yfirmaður fótboltamála hjá Víkingi.
„Byrjaði að spýtast út blóð og þá þurfti ég að horfa frá"
TENGT EFNI

„Byrjaði að spýtast út blóð og þá þurfti ég að horfa frá"

Fótbolti.net ræddi við Svein Gísla í dag og hann var spurður út í áhugann erlendis frá.

„Ég myndi ekki ganga svo langt að segja að ég hafi verið svekktur að það gekk ekki upp. Ég heyrði af áhuganum, þetta kom kannski á besta tíma því þarna var verið að selja Gunnar út. Það var kannski óheppni í því. Ég veit að Víkingarnir eru ekkert að reyna vera ósanngjarnir, skildi alveg að það væri ekki hægt að selja alla leikmenn frá sér þegar verið er að reyna vinna deildina. Þetta er bara staðan, óheppni með tímasetninguna. En það er bara áfram gakk, það er alltaf næsti gluggi."

Hvernig metur þú stöðuna núna?

„Atvinnumannadraumurinn lifir áfram, hann gerir það á meðan sjálfur er lifandi í þessu. Markmiðið er alltaf að taka skref upp á við í þessu og maður þarf að taka því þegar það kemur. Augnablikið var augljóslega ekki núna í sumar, en vonandi verður það næst ef það kemur eitthvað sem manni líst vel á," segir Sveinn Gísli.

Hann er 23 ára örvfættur varnarmaður sem verður líklega ekki meira með á tímabilinu eftir að hafa handarbrotnað gegn KR á þriðjudag.
Í leiknum í Ungverjalandi.

Í leiknum í Ungverjalandi.

Canon

Mynd: Víkingur/Hörður Ágústsson

Hann er búinn að sýna gæði og það gæti eitthvað gerst í janúar

Hann er búinn að sýna gæði og það gæti eitthvað gerst í janúar

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.