Steven Gerrard, stjóri Rangers í Skotlandi, fékk að mæta í viðtal eftir sigur á Livingston í skosku úrvalsdeildinni í gær þrátt fyrir að hafa fengið rautt spjald í hálfleik.
Hinn 24 ára gamli Alfredo Morelos fékk gult spjald fyrir meintan leikaraskap í fyrri hálfleik. Það var Gerrard ekki sáttur með og hann lét dómarann heyra það þegar liðin gengu til búningsklefa. Honum var vísað upp í stúku fyrir það.
Morelos skoraði sigurmarkið í seinni hálfleiknum en Gerrard var spurður út í það eftir leik hvort það væri ósanngjarnt að Morelos væri að fá orðspor fyrir að dýfa sér.
Gerrard svaraði því með því að segja: „Ekki hafa áhyggjur af Alfredo. Hann skoraði sigurmarkið og hann er núna að dansa ber að ofan við Sweet Caroline."
Gerrard var virkilega ósáttur við að fá ekki vítaspyrnu en hann getur verið mjög sáttur með liðið sitt sem er á barmi þess að vinna sinn fyrsta skoska meistaratitil í tíu ár.
🗣"Don't worry about Alfredo Morelos, he's dancing with no top on to Sweet Caroline" 🤣
— Football Daily (@footballdaily) March 3, 2021
Rangers boss Steven Gerrard's response when asked if striker Alfredo Morelos is worried about getting a certain reputation after being booked for diving in their 1-0 win over Livingston pic.twitter.com/wXIMqQevDe
Athugasemdir