PSG veitir Liverpool og Arsenal samkeppni - El Mala vill ekki fara til Brentford - Cucurella hugsar sér til hreyfings
   fös 05. júní 2026 14:36
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Viðtal
„Meðvitaður um að það koma ekki mörg tækifæri til að fara í stærri deildir"
Fastamaður í liði Elfsborg sem situr í þriðja sæti sænsku deildarinnar.
Fastamaður í liði Elfsborg sem situr í þriðja sæti sænsku deildarinnar.
Mynd: Elfsborg
Varð einn dýrasti leikmaður í sögu félagsins í fyrra.
Varð einn dýrasti leikmaður í sögu félagsins í fyrra.
Mynd: IF Elfsborg
Björn Hamberg er þjálfari Elfsborg og aðstoðarþjálfari sænska landsliðsins.
Björn Hamberg er þjálfari Elfsborg og aðstoðarþjálfari sænska landsliðsins.
Mynd: Elfsborg
Varð bikarmeistari með Fredrikstad fyrir tveimur árum síðan.
Varð bikarmeistari með Fredrikstad fyrir tveimur árum síðan.
Mynd: Aðsend
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Júlíus Magnússon er á sínu öðru tímabili með sænska liðinu Elfsborg en hann var keyptur þangað frá norska félaginu Fredrikstad fyrir um einu og hálfu ári síðan. Síðasta tímabil var kaflaskipt hjá Víkingnum en fótbrot og bekkjarseta settu strik í reikninginn framan af. Á lokakafla tímabilsins var Júlíus kominn í byrjunarlið Elfsborg og hefur haldið því sæti á þessu tímabili. Hann hefur spilað vel með liðinu og hefur vakið athygli stærri félaga.

Elfsborg situr í 3. sæti sænsku deildarinnar með 18 stig úr fyrstu ellefu leikjunum. Framundan er HM frí í Svíþjóð, en Svíar munu spila í F-riðli með Túnis, Hollandi og Japan seinna í þessum mánuði.

Fótbolti.net náði tali á Júlíusi þar sem hann og unnusta hans ásamt barni voru á leið frá Borås til Stokkhólms í gær. Leikmenn Elfsborg fá um tveggja vikna frí út af HM.

„Svíþjóð er á HM og það þarf að vera svigrúm út af því. Svo er þjálfarinn okkar (Björn Hamberg) líka aðstoðarþjálfari sænska landsliðsins. Næsti leikur er ekki fyrr en 5. júlí," segir Júlíus.

Miðjumaðurinn hefur verið fastamaður í liði Elfsborg á tímabilinu, hann hefur byrjað alla leiki og einungis einu sinni verið tekinn af velli undir lok leiks.

„Mér líður mjög vel, ég er búinn að koma mér aðeins betur fyrir en í fyrra, síðasta tímabil var svolítið óstabílt mínútulega séð á vellinum, varð líka fyrir meiðslum strax í byrjun sem litaði það svolítið. Ég er mjög sáttur með hvernig þetta hefur farið af stað og mína spilamennsku þó að við hefðum getað halað inn fleiri stig. Við höfum gert aðeins of mikið af jafnteflum, en heilt yfir er ég parsáttur."

„Við höfum aðeins verið að breyta til með leikstílinn, en hingað til höfum við verið að spila með tvo djúpa miðjumenn. Ég er svona bæði sexa og átta ef það er hægt að orða það þannig, sá sem er nær teig andstæðinganna getur elt sóknina en hinn bíður. Þetta er svolítið sveigjanlegt, ég er ekki eins sexa og ég var hjá Víkingi og Fredrikstad - meiri sveigjanleiki."


Elfsborg hefur gert fjögur jafntefli í röð. Eru þau öll svekkjandi?

„Við tökum kannski jafnteflinu á móti Häcken heima, þeir hafa verið ansi góðir og sókndjarfir. En eiginlega eftir alla fjóra leikina vorum við ósáttir með að hafa ekki verið yfir eða stolið sigrinum í restina. Við vorum líka nálægt því á Häcken. Ég myndi segja að við séum sáttir með eitt af jafnteflunum, en hin þrjú gegn Mjällby, Örgryte og Halmstad voru nánast eins og tap, allavega var fílingurinn inni í klefa þannig. Eftir síðasta leik ræddum við að við mögulega misstum mögulega af átta stigum á þessum kafla, en að sama skapi var gott að tapa ekki þessum leikjum. Við erum bara búnir að tapa einum af fyrstu ellefu leikjunum, sem við getum verið sáttir við, en værum á ansi góðum stað með fleiri sigrum."

Júlíus var valinn maður leiksins í síðasta leik gegn Örgryte, valið var tilkynnt á vellinum undir lok leiks.

„Ég fékk eitthvað gjafakort á vellinum, ég fékk þetta þó að liðsfélagi minn hafi skorað tvö mörk í leiknum. Það var fín viðurkenning, gaman að það sé líka tekið eftir litlu hlutunum, ekki bara þeim sem skoraði tvö. Þetta skiptir svo sem engu máli fyrir mig, ég er ekki þannig leikmaður, en auðvitað gaman."

Júlíus nefndi aðlögunina. Á síðasta tímabili spilaði hann lítið þar til í ágúst þegar hann svo varð fastamaður í liðinu.

„Ég komst á aðeins meira ról, þegar ég kom til baka eftir meiðsli þá var liðið að vinna leiki sem við áttum kannski ekki að vinna, liðið var á skriði og það var eðlilega ekki mikið svigrúm til að breyta. Þá voru tvær sexur í liðinu, tveir mjög góðir leikmenn, annar þeirra er einn besti miðjumaður deildarinnar og ég er að spila með honum núna, hinn (Besfort Zeneli) var seldur til Belgíu og er í HM hópnum hjá Svíum. Það var því ekki óskiljanlegt að ég væri ekki að spila, en að sama skapi ansi svekkjandi því ég sá alveg fyrir mér að komast fyrr inn í þetta eins og leit út fyrir áður en ég meiddist. Okkur byrjaði að ganga aðeins verr, misstum leiki í jafntefli eða töp, og þá fékk ég tækifæri og vann mér inn sæti í liðinu. Ég hef haldið því hingað til og vonandi heldur það áfram."

Hvernig líður þér með þann stað sem þú ert á? Hvernig metur þú þetta hverju sinni, ertu alltaf sáttur þar sem þú ert eða ertu alltaf að reyna þrýsta á að komast á hærra svið?

„Það er blanda af báðu. Eins og er þá er ég ansi sáttur með allan pakkann í Svíþjóð; lífið er gott og fjölskyldunni líður vel. Ég er að spila ágætlega og á góðu getustigi eins og er. Auðvitað er ég sáttur, en ég er samt alveg með það á bakvið eyrað að reyna komast ennþá hærra, reyna þrýsta á að ná öllu því sem maður getur út úr ferlinum. Ég verð 28 ára eftir þrjár vikur og ég er meðvitaður um að það koma ekkert mörg tækifæri til að fara í stærri deildir. Ég er samt alls ekki þannig samt að ég berji í borðið ef það kemur einhver áhugi," segir Júlíus.

Varðandi áhuga, ert þú alltaf meðvitaður um það ef það er eitthvað í gangi á bakvið tjöldin?

„Yfirleitt. Ég og Óli Garðars erum í mjög góðu sambandi, það er ekki þannig að ég viti bara af hlutunum á síðustu stundu, hann heldur mér upplýstum. Að sama skapi vil ég samt ekki fá að heyra ef það er eitthvað sem mun aldrei gerast eða ganga upp. Hann spyr mig líka hvort það sé eitthvað sem ég vilji skoða þegar það á við, þannig var það hjá Fredrikstad, ræddum saman nánast daglega eftir að við urðum bikarmeistarar (2024)."

Júlíus hefur skorað tvö mörk og lagt upp eitt í sænsku deildinni. Líður honum eins og á Íslandi þegar hann fékk meiri athygli þegar hann skoraði mörk?

„Já, kannski. Leikmenn í minni stöðu kannast við það að menn eru ekkert alltaf að tala um hlutina sem við eigum að gera fyrir liðið. Fótboltinn hefur samt þróast í það að allar tölur eru skoðaðar, en ég tek samt alveg eftir því að umtalið eykst þegar ég næ að skora," segir Júlíus.

Hjá Elfsborg er hann liðsfélagi Ara Sigurpálssonar og í sumar mun Gabríel Snær Gunnarsson ganga í raðir félagsins frá ÍA.
Slapp
banner
banner