Trúði ekki fréttum um Balogun: Hélt þetta væri gervigreindin

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Folarin Balogun verður með Bandaríkjamönnum þegar þeir mæta Belgíu í 16-liða úrslitum á HM á heimavelli.
Balogun fékk rautt spjald í 2-0 sigri gegn Bosníu í 32-liða úrslitum og átti því að fara í sjálfkrafa leikbann í 16-liða úrslitunum, en það hefur verið endurkallað eftir símtal frá Hvíta húsinu til FIFA.

Balogun hefur verið lykilmaður í bandaríska landsliðinu á heimsmeistaramótinu og er kominn með þrjú mörk í þremur leikjum.
„Þetta er mjög jákvætt fyrir okkur. Við fréttum af þessu í rútunni á leið á æfingu og fögnuðum saman," segir Christian Pulisic stjörnuleikmaður Bandaríkjanna.
Fótboltasérfræðingar gagnrýndu rauða spjaldið sem Balogun fékk en fáir bjuggust við því að leikbannið yrði afturkallað.
„Ég hélt að þetta væri gervigreindin fyrst þegar ég sá þetta," segir Chris Richards varnarmaður Bandaríkjanna. „Ég trúði þessu ekki fyrr en allir aðrir byrjuðu að fagna."

TENGT EFNI
Trump lét afturkalla leikbannið

USA-USA-USA ???? https://t.co/yKnJxew9tU pic.twitter.com/75KmExgrUJ
— The White House (@WhiteHouse) July 5, 2026