Fotbolti.net
05.11.26 - 19:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Byrjunarlið kvöldsins: Viktor Bjarki og Kristall byrja

Byrjunarlið kvöldsins: Viktor Bjarki og Kristall byrja
Canon

Mynd: EPA

Viktor Bjarki Daðason er í byrjunarliði FCK sem fær Iberia frá Georgíu í heimsókn í Sambandsdeildinni í kvöld. Rúnar Alex Rúnarsson og Gunnar Orri Olsen eru á bekknum.

Kristall Máni Ingason er í byrjunarliði Brann sem heimsækir St. Truiden frá Belgíu. Sævar Atli Magnússon er á bekknum en Eggert Aron Guðmundsson og Kjartan Már Kjartansson eru meiddir. Þá byrjar Kristian Nökkvi Hlynsson á bekknum hjá Twente sem fær Pafos frá Kýpur í heimsókn.
Það eru sex breytingar á liði Sunderland sem tapaði gegn Coventry um síðustu helgi. Liðið mætir Dinamo Zagreb í Evrópudeildinni í kvöld. Thomas Meunier, Kevin Danso, Dayann Methalie, Jules Ahoka, Malick Fofana og Wilson Isidor koma inn en Robin Roefs, Omar Alderete, Granit Xhaka, Nelson Angulo og Chris Rigg halda sæti sínu.

Jack Hinshelwood, Malick Yalcouye, Georginio Rutter, Michael Svoboda og Jaouen Hadjam koma inn í lið Brighton frá sigri gegn City um síðustu helgi. Liðið mætir Getafe í Sambandsdeildinni í kvöld.

Brighton gegn Getafe: Verbruggen, Hadjam, Dunk, Boscagli, Yacouye, Ayari, Hinshelwood, Gross, Rutter, Costinha, Svoboda.
Varamenn: Steele, McGill, Osman, Kostoulas, Gomez, De Cuyper, O'Riley, Vuskovic, Ibrahim, Nti.

Sunderland gegn Dinamo: Roefs; Meunier, Danso, Alderete, Methalie; Ahoka, Xhaka; Angulo, Rigg, Fofana, Isidor
Varamenn: Moore, Talbi, Brobbey, O'Nien, Reinildo, Sadiki, Le Fee, Hume, Whittaker, Jen, Jones, Tutierov, Proctor
Byrjunarlið kvöldsins: Viktor Bjarki og Kristall byrja
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.