29.11.26 - 20:39
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Man City sendir frá sér yfirlýsingu - Ætla að kvarta

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Manchester City ætlar að senda kvörtun til ensku dómarasamtakanna eftir umdeild atvik í 2-2 jafntefli liðsins gegn Arsenal í kvöld.
Jeremy Doku taldi að Jurrien Timber hafi rifið í hárið á sér en VAR fann enga sönnun á því. Síðar í leiknum reif Bruno Guimaraes greinilega í hárið á Doku en ekkert dæmt.

TENGT EFNI
Eiður Smári: VAR dómarinn má klæða sig úr Arsenal treyjunni
Viktor Gyökeres fékk boltann í höndina þegar Josko Gvardiol skallaði að marki í blálokin en það var ekkert dæmt. Man City hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna málsins.
„Manchester City er mjög vonsvikið með með nokkrar ákvarðanir dómaranna í leik liðsins gegn Arsenal. Félagið mun skrifa formlega til dómarasamtakana á mánudaginn (á morgun) til að óska eftir ítarlegri skýringu á lykilákvörðunum. Bæði ákvarðanatökuferlið á vellinum og beiting VAR," segir í yfirlýsingunni.
„Við væntum ítarlegs svars og munum halda áfram að verja hagsmuni félagsins, leikmanna okkar og stuðningsmanna."