Fotbolti.net
05.11.26 - 15:39
Elvar Geir Magnússon

De la Fuente og Perez mættu í jarðarförina

De La Fuente, lengst til vinstri, mætir í jarðarförina.

De La Fuente, lengst til vinstri, mætir í jarðarförina.

Canon

Mynd: EPA

Spænski sóknarmaðurinn Jesus de Miguel var borinn til grafar í dag. Luis de la Fuente, landsliðsþjálfari Spánar, og Florentino Perez, forseti Real Madrid, voru meðal þeirra sem mættu og vottuðu samúð.

De Miguel var þrítugur og lést í leik með Tenerife í spænsku annarri deildinni á mánudag. Eftir að hafa lent í samstuði við markvörð Andorra fór hann í hjartastopp.

Markvörðurinn Jesus Owono fékk samstundis rautt spjald og leiknum var hætt þegar í ljós kom að ástand De Miguel væri alvarlegt. Hann var fluttur á sjúkrahús og daginn eftir tilkynnt að hann væri látinn.
„Þetta eru erfiðustu dagar lífs míns"
TENGT EFNI

„Þetta eru erfiðustu dagar lífs míns"

Umboðsmaður De Miguel, Manuel Hernandez, sendi frá sér yfirlýsingu fyrir hönd fjölskyldu hans þar sem stendur: „Þakka ykkur fyrir að sýna væntumþykju, fyrir að minnast hans og fyrir að vera með okkur. Að finna slíka hlýju er eitthvað sem við munum alltaf bera með okkur.“

Owono sagði að hann væri að upplifa „erfiðustu daga lífs síns“ í yfirlýsingu sem félagslið hans, FC Andorra, sendi frá sér í gær.
Leikmenn og starfsmenn Tenerife.

Leikmenn og starfsmenn Tenerife.

Canon

Mynd: EPA

De la Fuente og Perez mættu í jarðarförina
Canon

Mynd: EPA

De la Fuente og Perez mættu í jarðarförina
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.