04.11.26 - 20:22
Jóhann Þór Hólmgrímsson
„Þetta eru erfiðustu dagar lífs míns"

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Jesus Owono, markvörður Andorra, hefur tjáð sig eftir sorglegan atburð þar sem hann lenti í árekstri við spænska framherjann Jesus De Miguel í leik Andorra og Tenerife í vikunni með þeim afleiðingum að De Miguel lést í kjölfarið.
Markvörðurinn fór með hnéð á undan sér og fór af miklum krafti í brjóstið á De Miguel. Hann lá sárkvalinn á vellinum áður en hann fór í hjartastopp, en talið er að endurlífgunartilraunir hafi staðið yfir í meira en tíu mínútur áður en hann var fluttur í skyndi á sjúkrahús.

TENGT EFNI
Gríðarleg sorg á Tenerife - „Lífið getur stundum slegið mann harkalega í andlitið“
„Þetta eru erfiðustu dagar lífs míns. Ég á erfitt með að finna réttu orðin og það er mjög erfitt fyriir mig að sætta mig við það sem gerðist. Mér líður gríðarlega illa yfir fráfalli Jesus. Ég hugsa til hans, fjölskyldunar og allra sem elskuðu hann," sagði Owono.
„Ég veit að það þarf að takast á við ýmislegt og ég mun horfast í augu við hvað sem gerist af mikilli virðingu. En núna get ég ekki hugsað um annað en Jesus og sársaukan sem við erum öll að upplifa. Hvíldu í friði Jesus."