05.11.26 - 22:41
Elvar Geir Magnússon
Deschamps við Man Utd: Hef engan áhuga

Deschamps hefur ekki áhuga á að taka við Manchester United.

Mynd: EPA

Manchester United kannaði hug Didier Deschamps, fyrrum landsliðsþjálfara Frakklands, en hann sagði félaginu að hann hefði engan áhuga á að verða stjóri liðsins.
Þetta segir í frétt Mirror og í frönskum fjölmiðlum. Deschamps gerði Frakka að heimsmeisturum 2018 en hann lét af störfum eftir HM núna í sumar. Hann býr yfir reynslu og sigurhefð sem heilla stjórnendur United.

Staða Michael Carrick, stjóra Manchester United, er ekki trygg en liðið hefur aðeins unnið einn af fyrstu níu deildarleikjum sínum.
Carrick mun stýra United gegn Aston Villa á sunnudag og vonast forráðamenn félagsins að liðið fylgi eftir öflugri endurkomu gegn Roma í Meistaradeildinni.
Deschamps hefur ekki áhuga á að taka starfið að sér og enn er talið líklegast að Eddie Howe, fyrrum stjóri Newcastle, taki við á Old Trafford ef Carrick er látinn taka pokann sinn.