05.11.26 - 19:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
„Hlýtur að vera að banka á dyrnar hjá enska landsliðinu"

Mynd: EPA

Mynd: EPA
David Moyes, stjóri Everton, segir að miðjumaðurinn Kieran Dewsbury-Hall eigi skilið að fá kallið í enska landsliðið.
Dewsbury-Hall er 28 ára en hann hefur spilað vel að undanförnu. Hann var maður leiksins í síðustu tveimur leikjum sem voru báðir gegn Newcastle í deildabikarnum og í deildinni. Hann hefur ekki spilað landsleik til þessa.

„Hann er að komast í formið sem hann var í í fyrra. Hann hefur verið mjög góður í undanförnum leikjum," sagði Moyes.
„Ég vona að hann fái kallið. Hann hlýtur að vera að banka á dyrnar. Ég hef alltaf sagt að það séu svo margir góðir leikmenn í hans stöðu. Svo framarlega sem hann heldur áfram að gera vel fyrir Everton verðum við ánægðir en ef hann fær viðurkenningu að fá kallið í landsliðið væri það frábært."