Fotbolti.net
05.11.26 - 20:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Talar um metnaðarleysi - „Versti hálfleikur tímabilsins"

Talar um metnaðarleysi - „Versti hálfleikur tímabilsins"
Canon

Mynd: EPA

AC Milan tapaði 2-0 gegn Ferencvaros á heimavelli í Evrópudeildinni í kvöld. Ruben Amorim, stjóri Milan, var að vonum vonsvikinn.

Hann sagði að hann hefði líklega ekki náð að stilla stemninguna rétt eftir að liðið vann granna sína í Inter um síðustu helgi.
„Það er engin skýring. Ég held að fyrri hálfleikurinn hafi verið sá versti á tímabilinu. Þetta snýst um einbeitingu og metnað: þetta er ekki taktískt vandamál,“ sagði Amorim.

„Við verðum að bæta okkur, við vorum ekki hugrakkir. Alliir í liðinu þurfa að æfa eins og (Strahinja) Pavlovic. Hann er tilbúinn að deyja á æfingum og allir eiga að haga sér svoleiðis."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.