Real Madrid vill leikmenn Liverpool - Tonali efstur á óskalista Juve - Lewandowski gæti fengið nýjan samning
   fös 06. febrúar 2026 16:45
Kári Snorrason
Heimild: Fotbollskanalen 
Arnór segir erfitt að hafa verið utan landsliðsins - „Hlakka til að snúa aftur“
Arnór hefur glímt við mikil meiðsli undanfarin ár.
Arnór hefur glímt við mikil meiðsli undanfarin ár.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Á síðasta tímabili spilaði Arnór þrettán leiki í deild og skoraði eitt mark fyrir Malmö.
Á síðasta tímabili spilaði Arnór þrettán leiki í deild og skoraði eitt mark fyrir Malmö.
Mynd: Malmö
Arnór fór yfir tímann í Feneyjum.
Arnór fór yfir tímann í Feneyjum.
Mynd: Venezia
Á að baki 34 A-landsleiki.
Á að baki 34 A-landsleiki.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnór Sigurðsson, leikmaður Malmö, segir síðasta árið hafa verið afar krefjandi og segir erfitt að hafa verið utan íslenska landsliðsins. Hann hefur verið mikið frá vegna meiðsla undanfarið ár.

Í einkunnargjöf sænska miðilsins Fotbollskanalen fékk Arnór einn í einkunn af fimm fyrir síðasta tímabil. Í umsögninni stóð að hann hafi átt martraðarkennt ár.

Arnór er þó að snúa aftur og var hann í byrjunarliði Malmö gegn Genk í Evrópudeldinni í síðustu viku. Arnór ræddi við sænska miðilinn Fotbollskanalen um endurkomuna og meiðslin síðasta ár.

„Hvernig síðasta tímabil endaði eru gríðarleg vonbrigði, sérstaklega þar sem ég náði ekki að koma mér á strik eftir meiðsli. Það voru mikil meiðsli hjá mér og ég náði aldrei almennilega af stað, en ég fæ ekkert út úr því að vorkenna sjálfum mér.

Þetta er bara hluti af fótboltanum. Ég einbeiti mér að því sem er fram undan. Mér leið ekki alltaf eins og ég sjálfur í sumum leikjum og suma daga, en ég efaðist aldrei um sjálfan mig. Þetta var erfitt tímabil.“


Sástu alltaf ljós í enda ganganna?
„Ekki alla daga, ef ég á að vera hreinskilinn, en núna sé ég það með hjálp vina minna, fjölskyldu og fólksins í kringum mig. Þau hjálpuðu mér að sjá það, en það var ekki þannig alla daga í fyrra.“

Erfitt að vera ekki í landsliðinu
Er erfitt að hafa verið utan landsliðsins?
„Algjörlega. Við vorum líka mjög nálægt því að komast á EM, þannig að það var erfitt. Ég missti af september, október og nóvember í fyrra vegna meiðsla. Við erum með mjög gott lið og marga spennandi leikmenn og nýjan þjálfara, þannig að ég hlakka til að snúa aftur.“

Er stærsti draumurinn að spila á stórmóti með Íslandi?
„Já, ég myndi segja það. Ég hef spilað í Meistaradeildinni sem var einn stærsti draumur minn þegar ég var lítill. Að spila með Íslandi á EM eða HM væri frábært.

Það eru alltaf miklar væntingar þar sem við höfum verið þar áður og mér finnst það sanngjarnt. Við erum núna með leikmenn sem eru að fá meiri reynslu. Þetta lítur mjög vel út og ég held að við getum gert góða hluti.“


Vill spila í topp fimm deild
Arnór var spurður hvort hann sæi sjálfan sig í einni af fimm sterkustu deildum Evrópu í komandi framtíð.

„Já, klárlega. Ég hef spilað í sterkum deildum áður og mig langar að gera það aftur, en eftir ár eins og í fyrra þá kann maður virkilega að meta það að vera heill og líða vel.

Þegar manni líður vel, þá spilar maður vel. Ég er ekki að hugsa núna að ég verði að fara þangað eftir eitt eða tvö ár. Ég nýt þess að vera þar sem ég er núna og ef það gerist þá er það bara bónus.“


Sérstakur tími hjá Blackburn og misheppnuð dvöl á Ítalíu
Arnór var á mála hjá Blackburn áður en hann gekk til liðs við Malmö. Hann segir fyrra tímabilið gott en hann var síðar tekinn út úr 25 manna hóp liðsins eftir að hann vildi ekki skrifa undir framlengingu á samningi sínum.

„Tíminn minn þar var sérstakur, fyrsta tímabilið var frábært með Jon Dahl Tomasson. Ég fann að ég sýndi gæðin mín og að ég get spilað á því stigi. Svo komu mörg meiðsli árið eftir og nýr þjálfari. Samningurinn minn rann út þegar ég meiddist í febrúar og þeir vissu ekki hversu lengi ég yrði frá, þannig að það varð samkomulag um að ég myndi ekki vera áfram.“

Arnór lék með Venezia á láni frá CSKA Moskvu fyrir fimm árum og segir hann tímann þar óvenjulegan.

„Þar var margt gert öðruvísi. Það var margt sem var sagt sem stóðst ekki. Við vorum mjög margir leikmenn, yfir þrjátíu held ég, og ég var þar á láni. Það var margt bæði innan og utan vallar sem var ekki í lagi. Ég veit líka að ég var ekki sá eini sem upplifði það þannig.

Til dæmis hvernig þjálfarinn hugsaði. Ég talaði aldrei almennilega við hann, en svo var sagt að hann hefði sagt hitt og þetta og það var ekki rétt. Það var mikið af slíku.“

Athugasemdir
banner
banner