Michael Olise, Arne Slot, Julian Alvarez, Rafael Leao, Yan Diomande og fleiri góði koma til sögu í slúðrinu
Venni: Þurfum að höndla það betur en síðast
Heimir Guðjóns: Þurfum að finna lausnir
Siggi Lár: Gaman að vera í Laugardalnum
Horfðu á Besta spjallið - Staða mála skoðuð í landsleikjahlénu
Pablo Punyed sáttur: Vona að ég sjálfur geti spilað minna og minna í sumar
Gaui Lýðs um uppganginn á Ásvöllum: Setjum stefnuna á að komast í efstu deild
Nemanja Pjevic: Þegar maður bíður eftir strætó koma þeir allt í einu þrír í einu
Hrafn Guðmunds: Ég þarf að halda þessu áfram
Davíð Smári: Höfum verið með óþægilega líkamstjáningu
Svekktur Nenad: Tek þetta á mig
Magnús Már súr: Það var samt ekki það sem fór með okkur í dag
Gunnari Heiðari fannst ekkert eðlilega gaman að horfa á HK liðið
Glódís: Þetta eru hræðilegar reglur
Stórt fyrir Söndru Maríu - „Hún elskar að vera hérna"
„Var að reka á eftir hlutum sem hún á ekkert að vera að reka á eftir“
Thelma eftir fyrsta landsliðsmarkið: Ég er smá fúl samt
Talar um „ógeðslegan leik" - Þarf betri ramma um nýju reglurnar
Sara ræðir heimkomuna - „Var í Lyon þegar Dóri spyr mig fyrst hvort ég sé að koma heim“
Sævar Atli ræðir brottrekstur Freys - „Fengum ekki að kveðja hann“
Erfitt að finna betri stað til að búa á en skoðar sína möguleika
   lau 06. júní 2026 16:56
Ívar Björgvinsson
Heimir Guðjóns: Þurfum að finna lausnir
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fylkir tók á móti Þrótti í 8. umferð Lengjudeildar karla, leiknum lauk með 1-3 sigri Þróttar. Fótbolti.net var á staðnum og ræddi við Heimi Guðjónsson, þjálfara Fylkis, eftir leikinn.


Lestu um leikinn: Fylkir 1 -  3 Þróttur R.

„Mér fannst Þróttararnir betri en við í dag. Það var jafnræði með þessu í fyrri hálfleik og við áttum kafla í lok fyrri hálfleiks en svo komum við bara steinsofandi út í seinni hálfleikinn og þeir gengu á lagið. Svo kom smá líf síðasta korterið og við skoruðum eitt mark en heilt yfir sanngjarn sigur Þróttara.''

Sóknarleikur Fylkis var heldur dapur framan af leik en varð aðeins líflegri eftir skiptingar eftir klukkutíma leik. Hvað vantaði helst upp á?

„Það vantaði hreyfingu, við vorum að taka of margar snertingar á boltann og þetta gekk ekki nógu hratt. Í þessi fáu skipti sem við létum boltann ganga hratt og vorum að skipta honum á milli vængja þá komu möguleikar á opnunum.''

Tvö mörk í síðari hálfleiknum koma Fylki í mjög vonda stöðu og var það erfitt að ætla að fara að koma til baka þá.

„Í síðustu tveimur leikjum erum við búnir að fá á okkur átta mörk og mikið af þeim hafa verið mörk í ódýrari kantinum þar sem menn eru einfaldlega ekki að vinna grunnvinnuna og ekki að dekka mennina sína. Svo töpum við allt of mikið af einvígjum í þessum leik og við þurfum að finna lausnir og fara í grunninn.''

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum að ofan.


Slapp
banner
banner