Michael Olise, Arne Slot, Julian Alvarez, Rafael Leao, Yan Diomande og fleiri góði koma til sögu í slúðrinu
Lengjudeild karla
Vestri
LL 5
1
Völsungur
2. deild karla
Fjölnir
LL 2
3
Selfoss
Lengjudeild karla
Fylkir
LL 1
3
Þróttur R.
Fylkir
1
3
Þróttur R.
0-1 Sigurður Egill Lárusson '24
0-2 Sigurður Egill Lárusson '56
0-3 Magnús Þórðarson '70
Theodór Ingi Óskarsson '72 1-3
06.06.2026  -  14:00
tekk VÖLLURINN
Lengjudeild karla
Dómari: Twana Khalid Ahmed
Áhorfendur: 683
Maður leiksins: Sigurður Egill Lárusson
Byrjunarlið:
1. Ólafur Kristófer Helgason (m)
3. Arnór Breki Ásþórsson
4. Hlynur Sævar Jónsson
5. Orri Sveinn Segatta (f)
6. Guðfinnur Þór Leósson ('83)
7. Máni Austmann Hilmarsson ('61)
8. Dagur Traustason ('61)
17. Birkir Eyþórsson ('71)
70. Guðmundur Tyrfingsson ('61)
77. Bjarki Steinsen Arnarsson
92. Kári Sigfússon
- Meðalaldur 25 ár

Varamenn:
30. Kristófer Leví Sigtryggsson (m)
9. Eyþór Aron Wöhler ('61)
14. Tumi Fannar Gunnarsson ('71)
18. Nikulás Val Gunnarsson ('61)
19. Arnar Númi Gíslason
20. Theodór Ingi Óskarsson ('61)
23. Aron Snær Guðbjörnsson ('83)
- Meðalaldur 23 ár

Liðsstjórn:
Heimir Guðjónsson (Þ)
Björn Metúsalem Aðalsteinsson (MÞ)
Kristófer Sigurgeirsson (AÞ)
Ágúst Aron Gunnarsson (Liðsstj.)
Daníel Bjarki Stefánsson (Sjúkraþj.)

Gul spjöld:
Guðfinnur Þór Leósson ('18)
Birkir Eyþórsson ('25)
Orri Sveinn Segatta ('37)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Þróttarar fara með sigur af hólmi Sannfærandi sigur hjá gestunum og tylla þeir sér á topp deildarinnar.

Æsispennandi toppbarátta sem við erum að fá hér. Ég þakka fyrir mig.

Skýrsla og viðtöl væntanleg.
93. mín
Eyþór Aron nálægt því! Með hörkuskot sem fer rétt yfir markið og þetta er að renna út í sandinn fyrir heimamenn.
90. mín
Fylkismenn fá fjórar mínútur í uppbót til þess að skora tvö mörk.
89. mín
Inn:Mikhael Kári Olamide Banjoko (Þróttur R.) Út:Sigurður Egill Lárusson (Þróttur R.)
89. mín
Inn:Viktor Steinarsson (Þróttur R.) Út:Örn Bragi Hinriksson (Þróttur R.)
88. mín
Þrumufleygur hjá Baldri sem hafnar í þverslánni. Nálægt því að gera út um leikinn.
84. mín
Kári tekur góða spyrnu á kollinn á Orra sem skallar beint á Þórhall í markinu.
83. mín
Fylkir fær horn
83. mín
Inn:Aron Snær Guðbjörnsson (Fylkir) Út:Guðfinnur Þór Leósson (Fylkir)
80. mín
Tíu mínútur eftir Fylkismenn halda áfram að færa sig framar á völlinn í leit að öðru marki.
77. mín
Baldur Hannes kom einnig inn á fyrir Þróttara og útaf fór Vilhjálmur.
77. mín
Inn:Njörður Þórhallsson (Þróttur R.) Út:Unnar Steinn Ingvarsson (Þróttur R.)
74. mín
Theodór með fyrirgjöf sem er á leiðinni inn og Þórhallur þarf að blaka boltanum aftur fyrir.
72. mín MARK!
Theodór Ingi Óskarsson (Fylkir)
Stoðsending: Kári Sigfússon
VIÐ ERUM MEÐ LEIK Theódór kemst í gott færi eftir sendingu frá Kára og setur boltann á nærstöngina. Vel klárað hjá varamanninum.

Er endurkoma á leiðinni?
71. mín
Inn:Tumi Fannar Gunnarsson (Fylkir) Út:Birkir Eyþórsson (Fylkir)
70. mín MARK!
Magnús Þórðarson (Þróttur R.)
Siggi Lár með spyrnuna sem fer í vegginn, Kári nær frákastinu en Ólafur varði boltann fyrir lappir Magnúsar sem setti hann í autt markið af stuttu færi.

0-3 og róðurinn heldur betur orðinn þungur fyrir heimamenn.
69. mín
Aftur sækir Örn aukaspyrnu rétt fyrir utan teig Fylkis en nú hægra megin.

Siggi Lár stillir sér upp.
68. mín
Kári með enn eina frábæra hornspyrnuna en enn og aftur kýlir Þórhallur boltann burt.
67. mín
Magnús Þórðar í álitlegri stöðu en reynir að vippa boltanum yfir Ólaf sem var framarlega í markinu en það misheppnast.
66. mín
Það gengur lítið upp hjá Fylkismönnum þessa stundina. Mikið um misheppnaðar sendingar og lélegar ákvarðanir.
62. mín
Þreföld skipting heimamanna hlýtur að lífga aðeins upp á sóknarleikinn.
61. mín
Inn:Nikulás Val Gunnarsson (Fylkir) Út:Guðmundur Tyrfingsson (Fylkir)
61. mín
Inn:Theodór Ingi Óskarsson (Fylkir) Út:Dagur Traustason (Fylkir)
61. mín
Inn:Eyþór Aron Wöhler (Fylkir) Út:Máni Austmann Hilmarsson (Fylkir)
56. mín MARK!
Sigurður Egill Lárusson (Þróttur R.)
Stoðsending: Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson
0 - 2 Siggi Lár! Þróttarar geisast upp völlinn eftir tapaðan bolta hjá Fylki og Vilhjálmur rennir boltanum á hægri löppina á Sigurði sem klárar á nærstöngina.
55. mín
Kári með frábæran bolta inn á markteiginn en Þórhallur nær að kýla þetta í burtu.
55. mín
Fylkismenn fá hornspyrnu
52. mín
DAUÐAFÆRI Magnús Þórðar með stórkostlega snertingu og boltinn fer beint á Örn sem er einn á móti Ólafi en lætur hann verja frá sér.

Langbesta færi leiksins.
50. mín
Siggi tekur spyrnuna út fyrir vegginn en hún fer í hliðarnetið á nærstönginni.
49. mín
Örn sækir aukaspyrnu fyrir Þróttara rétt fyrir utan teig Fylkis.
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað!
45. mín
Hálfleikur
Kári með fyrirgjöf sem fer aftur fyrir og Twana flautar til hálfleiks.

Þróttarar hafa verið með yfirhöndina og leiða verðskuldað.

Tökum okkur 15 mínútna hlé.
45. mín
Orri með slaka sendingu beint á Kára Kristjáns sem reynir skot af 60 metra færi en boltinn víðsfjarri markinu.
45. mín
5 mínútur í uppbót
43. mín
JA HÉRNA HÉR Sigurður Egill með galna sendingu til baka sem Kári kemst inn í og er einn gegn Þórhalli en rennur og Þórhallur rífur boltann af liggjandi Kára.
37. mín Gult spjald: Orri Sveinn Segatta (Fylkir)
Reynir að stoppa hraða sókn en mistekst og Twana beitir hagnaði.
35. mín
Reynsluboltinn það sem skilur liðin að
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð



34. mín
Örn Bragi með gott hlaup upp rennuna og nær skoti á nærstöngina sem Ólafur ver og Þróttur fær enn eina hornspyrnu.
30. mín
Fylkismenn vilja víti Boltinn fer í varnarmann Þróttar og aftur fyrir og Fylkismenn æfir yfir því að hafa ekki fengið víti.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
30. mín
Inn:Stefán Þórður Stefánsson (Þróttur R.) Út:Kolbeinn Nói Guðbergsson (Þróttur R.)
Kolbeinn haltrar út af vellinum og Stefán tekur hans stað.
28. mín
Fylkismenn dansandi fyrir utan tegin Fylkis og Magnús Þórðar tekur skot sem ratar beint á Ólaf.
25. mín Gult spjald: Birkir Eyþórsson (Fylkir)
Fer aðeins of gróft inn í tæklingu og Twana sýnir honum það gula.
24. mín MARK!
Sigurður Egill Lárusson (Þróttur R.)
Stoðsending: Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson
SIGURÐUR EGILL! Fær boltann í góðri stöðu vinstra megin við teig Fylkismanna og neglir honum í fjærhornið stöngin inn.

Stöngin inn alltaf óverjandi og Sigurður vissi það!
23. mín
Eiríkur með góðan bolta inn á teig Fylksimanna en þessu er hreinsað í horn.
18. mín Gult spjald: Guðfinnur Þór Leósson (Fylkir)
Stígur á Vilhjálm og uppsker fyrsta spjald leiksins.
16. mín
Fylkismenn ógna í fyrsta sinn Guðmundur Tyrfingsson með skemmtilega hreyfingu og tekur gott skot sem Þróttarar ná að henda sér fyrir og boltinn fer aftur fyrir og hornspyrna niðurstaðan.
13. mín
Þróttarar fá sína þriðju hornspyrnu sem Sigurður tekur og kemur með frábæran bolta inn á teiginn en Ólafur kýlir hann í burtu.
Lengjudeildin er á Livey - Með kóðanum fotboltinet fæst 30% afsláttur af fyrsta mánuðinum! Livey
10. mín
Orri með tæpa sendingu til baka á Ólaf en hann nær að negla boltanum útaf.
6. mín
Þróttarar halda meira í boltann þessar upphafsmínútur.
2. mín
Gestirnir með fyrsta skotið Magnús Þórðar með skot í varnarmann og boltinn aftur fyrir endamörk.
1. mín
Leikur hafinn
Gestirnir eiga upphafsspyrnu leiksins
Fyrir leik
Byrjunarliðin komin inn og má sjá þau hér til hliðar Fylkismenn gera einungis eina breytingu frá 5-1 tapinu gegn Aftureldingu, Tumi Fannar tyllir sér á bekkinn og inn kemur Birkir Eyþórsson.

Þórhallur er í markinu í dag en hann kom inn á fyrir Aron Dag í hálfleik í 2-0 sigrinum gegn Grindavík í síðustu umferð. Ein önnur breyting er á liði Fylkis en Magnús Þórðar kemur inn fyrir Baldur Hannes.
Fyrir leik
Sagan með Árbæingum í liði Viðureign liðanna hér í dag er sú fimmtugasta í sögunni samkvæmt KSÍ og í hinum 49 leikjunum hafa Fylkismenn verið með yfirhöndina. 26 leikir hafa endað með sigri Fylkis, 9 leikir hafa lokið með jafntefli og hafa Þróttarar unnið 14 leiki.

Þróttarar voru þó með yfirhöndina í fyrra þar sem báðum leikjunum í Lengjudeildinni lauk með sigri Þróttar þar sem leikirnir unnust 2-1 í Laugardalnum annars vegar og 1-2 í Árbænum hins vegar.

Við þurfum því að fara rúm tvö ár aftur í tímann til þess að finna Fylkissigur en var það 29. febrúar árið 2024 í Lengjubikarnum.
Fyrir leik
Mikið um að vera í dag Margir leikir í boltanum í dag en engu að síður er stórleikur dagsins hér í Árbænum.

Fyrir leik
Þróttur Þróttur er í fjórða sæti deildarinnar, en aðeins þremur stigum frá toppnum. Með sigri fara upp um þrjú sæti og munu því fara einnig á topp deildarinnar þannig það er mikið í húfi fyrir bæði lið hér í dag.
Örn Bragi Hinriksson, fæddur árið 2007, er markahæsti maður Fylkis með fimm mörk.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Fylkir Árbæingar sitja í 2. sætinu þar sem þeir eru einu stigi frá toppliðinu, Aftureldingu, sem tapaði í gær gegn HK. Með sigri í dag tylla þeir sér því á toppinn þrátt fyrir þungt tap gegn Mosfellingum í síðustu umferð.
Guðmundur Tyrfingsson er markahæsti maður Fylkis með fjögur mörk í aðeins fimm leikjum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Dómarateymið Twana Khalid Ahmed verður með flautuna í dag og honum til halds og trausts sem aðstoðardómarar verða Birkir Sigurðarson og Jovan Subic. Halldór Breiðfjörð Jóhannsson verður dómaraeftirlitsmaður dagsins.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Árbærinn heilsar Góðan daginn og velkomin í þráðbeina textalýsingu fyrir leik Fylkis og Þróttar í 8. umferð Lengjudeildar karla.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Sæl öll og velkomin í textalýsingu fyrir Reykjavíkurslaginn þar sem Fylkir tekur á móti Þrótti í Árbænum.
Byrjunarlið:
1. Þórhallur Ísak Guðmundsson (m)
2. Eiríkur Þorsteinsson Blöndal (f)
5. Kolbeinn Nói Guðbergsson ('30)
10. Sigurður Egill Lárusson ('89)
11. Magnús Þórðarson
21. Brynjar Gautur Harðarson
22. Kári Kristjánsson
25. Hlynur Þórhallsson
27. Örn Bragi Hinriksson ('89)
33. Unnar Steinn Ingvarsson ('77)
45. Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson
- Meðalaldur 24 ár

Varamenn:
3. Stefán Þórður Stefánsson ('30)
4. Njörður Þórhallsson ('77)
12. Fabian Bujnowski
14. Daníel Karl Þrastarson
20. Viktor Steinarsson ('89)
77. Mikhael Kári Olamide Banjoko ('89)
91. Jakob Ocares Kristjánsson
- Meðalaldur 22 ár

Liðsstjórn:
Sigurvin Ólafsson (Þ)
Hans Sævar Sævarsson (AÞ)
Alexander Máni Curtis (Liðsstj.)
Gísli Þór Einarsson (MÞ)
Orri Sigurjónsson (Styrktarþj.)
Baldur Hannes Stefánsson (Leikmaður utan hóps)
Valgeir Einarsson Mantyla (Sjúkraþj.)

Gul spjöld:

Rauð spjöld: