UEFA gagnrýnir FIFA harðlega - „Grafið undan trúverðugleika keppninnar“

Aleksander Ceferin, forseti UEFA, hefur verið óhræddur við að gagnrýna FIFA.

Mynd: EPA

Ekki í banni gegn Belgíu.

UEFA hefur gefið út yfirlýsingu þar sem sambandið harðlega gagnrýnir afturkall á leikbanni Folarin Balogun, leikmanni Bandaríkjanna.
Sambandið kallar ákvörðun FIFA fordæmalausa, óskiljanlega og óréttlætanlega.
„Þegar ekki er lengur hægt að treysta því að þeir sem eiga að gæta reglnanna tryggi að þeim sé fylgt, er heilindum leiksins stefnt í hættu og grafið undan trúverðugleika keppninnar,“ segir m.a. í tilkynningu UEFA.

TENGT EFNI
Trump lét afturkalla leikbannið
Þetta er í annað sinn sem UEFA gagnrýnir FIFA á núverandi heimsmeistaramóti. Fyrra skiptið var eftir að sómalíska dómaranum, Omar Artan, var meinuð innganga í Bandaríkin og fékk ekki að dæma á mótinu.
UEFA kallaði ákvörðunina virðingarlausa og var Artan fenginn til að dæma úrslitaleik Evrópska Ofurbikarsins sem fer fram í næsta mánuði.

UEFA statement on the Balogun case: ??https://t.co/9LQDx8waKe
— UEFA (@UEFA) July 6, 2026

Ekki í banni gegn Belgíu.

Mynd: EPA