Fotbolti.net
06.10.19 - 12:13
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

England - Byrjunarlið: Hudson-Odoi byrjar - Özil ekki í hóp

Callum Hudson-Odoi.

Callum Hudson-Odoi.

Canon

Mynd: Getty Images

Það eru þrír leikir sem hefjast í ensku úrvalsdeildinni klukkan 13:00. Leikur Southampton og Chelsea verður sýndur í beinni útsendingu á Síminn Sport.
Frá leiknum gegn Lille í Meistaradeildinni gerir Frank Lampard, stjóri Chelsea, eina breytingu. Callum Hudson-Odoi byrjar sinn fyrsta deildarleik á tímabilinu og fer Reece James á bekkinn.

Southampton gerir tvær breytingar á liði sínu sem tapaði naumlega fyrir Tottenham um síðustu helgi. Valery kemur inn fyrir Vestergaard og byrjar Shane Long í stað Boufal.

Fyrir leikinn er Chelsea í níunda sæti með 11 stig. Southampton er í 16. sæti með sjö stig.

Byrjunarlið Southampton: Gunn, Bertrand, Bednarek, Yoshida, Valery, Hojbjerg, Romeu, Ward-Prowse, Redmond, Ings, Long.
(Varamenn: McCarthy, Stephens, Adams, Arsmtrong, Boufal, Obafemi, Danso)

Byrjunarlið Chelsea: Arrizabalaga, Alonso, Zouma, Tomori, Azpilicueta, Kante, Jorginho, Mount, Hudson-Odoi, Willian, Abraham.
(Varamenn: Caballero, Christensen, Barkley, Kovacic, Pulisic, Batshuayi, James)

Manchester City tekur á móti Úlfunum. Þar eru Kevin de Bruyne, Aymeric Laporte og John Stones frá vegna meiðsla hjá City. Otamendi og Fernandinho eru áfram miðverðir. Cancelo og Kyle Walker byrja báðir.

Raheem Sterling kemur þá inn í liðið frá sigurleiknum gegn Dinamo Zagreb í Meistaradeildinni. Bernardo Silva fer á bekkinn.

Úlfarnir unnu 1-0 sigur á Besiktas í Evrópudeildinni í vikunni og frá þeim leik gerir Nuno, stjóri liðsins, fjórar breytingar. Dendoncker, Vinagre, Traore og Cutrone koma inn í byrjunarliðið fyrir Doherty, Jonny, Gibbs-White og Neto.

City er í öðru sæti deildarinnar, átta stigum frá Liverpool, og eru Úlfarnir í 15. sæti með sjö stig.

Byrjunarlið Man City: Ederson, Walker, Otamendi, Fernandinho, Cancelo, Rodri, Gundogan, D.Silva, Mahrez, Aguero, Sterling.
(Varamenn: Bravo, Jesus, Zinchenko, Angelino, B.Silva, Foden, Garcia)

Byrjunarlið Wolves: Rui Patricio, Boly, Coady, Saiss, Dendoncker, Joao Moutinho, Vinagre, Traore, Neves, Cutrone, Jimenez.
(Varamenn: Ruddy, Doherty, Vallejo, Bennett, Gibbs-White, Jonny, Kilman)

Arsenal tekur á móti Bournemouth. Gabriel Martinelli, sem átti frábæran leik gegn Standard Liege í Evrópudeildinni á fimmtudag, byrjar á bekknum hjá Arsenal.

Pepe, Saka og Aubameyang eru í fremstu víglínu og er Ceballos inn á miðjunni. Ceballos er sá eini sem byrjaði gegn Standard, sem er í byrjunarliðinu í dag.

Mesut Özil er áfram ekki í hóp hjá Arsenal. Hann virðist ekki vera í plönum Unai Emery.

Eddie Howe, stjóri Bournemouth, byrjar með sama lið og gerði 2-2 jafntefli gegn West Ham um síðustu helgi.

Byrjunarlið Arsenal: Leno, Chambers, Sokratis, Luiz, Kolasinac, Guendouzi, Xhaka, Pepe, Ceballos, Saka, Aubameyang
(Varamenn: Martinez, Tierney, Torreira, Maitland-Niles, Holding, Willock, Martinelli)

Byrjunarlið Bournemouth: Ramsdale, Stacey, Ake, Steve Cook, Rico, Billing, Lerma, Harry Wilson, Solanke, King, Callum Wilson.
(Varamenn: Boruc, Francis, Surman, Groeneveld, Lewis Cook, Fraser, Kelly)

Leikir dagsins:
13:00 Southampton - Chelsea (Síminn Sport)
13:00 Arsenal - Bournemouth
13:00 Man City - Wolves
15:30 Newcastle - Man Utd (Síminn Sport)
Cancelo byrjar sinn fyrsta leik í ensku úrvalsdeildinni.

Cancelo byrjar sinn fyrsta leik í ensku úrvalsdeildinni.

Canon

Mynd: Getty Images

Özil er ekki í hóp hjá Arsenal.

Özil er ekki í hóp hjá Arsenal.

Canon

Mynd: Getty Images

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Brighton1+43
2Arsenal1+33
3Brentford1+33
4Everton1+23
5Hull City1+23
6Man City1+13
7Ipswich Town1+13
8Leeds1+13
9Liverpool101
10Newcastle101
11Chelsea000
12Fulham000
13Sunderland1-10
14Bournemouth1-10
15Nott. Forest1-10
16Man Utd1-20
17Crystal Palace1-20
18West Ham38-1939
18Tottenham1-30
19Coventry1-30
19Burnley38-3722
20Wolves38-4120
20Aston Villa1-40
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.