Fotbolti.net
06.11.26 - 12:41
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Túfa er fyrsti kostur KA - „Erum að sjá hvort það gangi upp"

Túfa er fyrsti kostur KA - „Erum að sjá hvort það gangi upp"
Canon

Mynd: Túfa

Lengjudeildin
Srdjan Tufegdzic er fyrsti valkostur KA þegar kemur að ráðningu á þjálfara karlaliðs félagsins. Þetta segir Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA, í samtali við Fótbolta.net í dag.

Túfa, eins og hann er alltaf kallaður, þekkir vel til hjá KA, er fyrrum leikmaður liðsins og kom KA upp úr næstefstu deild 2016. Túfa er búsettur í Svíþjóð ásamt fjölskyldu sinni en sagði í viðtali við Fótbolta.net í síðasta mánuði að hann myndi klárlega íhuga það ef hann fengi tilboð frá Íslandi um þjálfarastarf.

Fótbolti.net sagði svo frá því fyrir viku síðan að KA hefði sett sig í samband við Túfa.
KA hefur sett sig í samband við Túfa
TENGT EFNI

KA hefur sett sig í samband við Túfa

„Við höfum tekið fund með tveimur þjálfurum, það er ekkert launungarmál að við höfum verið að ræða við Túfa. Við erum að sjá hvort það gangi upp, hann er með fjölskylduna úti í Svíþjóð. Þetta skýrist væntanlega á næstu dögum," segir Sævar.

Myndir þú segja að Túfa væri valkostur númer eitt eins og staðan er í dag?

„Já, Túfa er það hjá okkur. Við erum aðeins að bíða og sjá hvernig staðan hjá honum verður, gefum honum nokkra daga."

KA er án þjálfara sem stendur eftir að ljóst varð að Hallgrímur Jónasson yrði ekki áfram hjá félaginu. Það er einnig ljóst að Eiður Smári Guðjohnsen, sem kom inn í ágúst hjá KA, verður ekki áfram hjá félaginu.
Túfa er fyrsti kostur KA - „Erum að sjá hvort það gangi upp"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.