Fotbolti.net
20.10.26 - 16:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Kann ekki að vera í fríi - „Sakna þess að vera úti á velli"

Gekk ekki vel hjá Värnamo.

Gekk ekki vel hjá Värnamo.

Canon

Mynd: Túfa

Srdjan Tufegdzic hefur verið án starfs frá því í byrjun júlí en þá var hann látinn fara sem þjálfari Värnamo. Hann er nú búsettur í Malmö ásamt fjölskyldu sinni en það er farið að kitla að komast aftur í þjálfun.

Fótbolti.net ræddi við Túfa í vikunni og var hann spurður út í tímann hjá Värnamo.
Sonur Túfa bar fyrirliðabandið hjá serbneska unglingalandsliðinu
TENGT EFNI

Sonur Túfa bar fyrirliðabandið hjá serbneska unglingalandsliðinu

Kann ekki að vera í fríi
„Þetta er smá snúið núna, þetta er í fyrsta skiptið frá því að áður en ég byrjaði að spila sem ég er í svolitlu fríi. Frá því að ég byrjaði að þjálfa fyrir 14 árum, fyrst sem aðstoðarmaður Bjarna Jó, þá hef ég eiginlega alltaf verið í starfi og kann eiginlega ekkert að vera í fríi."

„Þetta hitt vel á varðandi flutningana, ég gat hjálpað með pappírsvinnu og skipulag varðandi heimilið. Það hefði verið of mikið að biðja konuna um að sjá um það allt ein. Sem betur þá gat ég verið á staðnum og með strákunum þegar þeir byrjuðu í nýjum skóla og hjá nýju félagi. Ég hef getað kíkt á æfingar og fylgst með leikjum."

„En núna er ég farinn að finna að þetta er úr mínum karakter að sitja heima. Ég hef verið að klippa myndbönd og fylgist með æfingum hjá meistaraflokki Malmö."


Þjálfarateymi Malmö hefur leyft Túfa að fylgjast með æfingum og hann er duglegur að mæta og fylgjast með en það er farið að kitla að komast aftur á grasið.

„Planið í næsta mánuði er að kíkja annað í Evrópu og fylgjast með þar. Lífið er áfram fótbolti, í sjónvarpinu er aldrei annað en fótbolti, en ég sakna þess að vera úti á velli."

Opinn fyrir því að fara aftur til Íslands
Værir þú opinn fyrir því að fara aftur til Íslands og starfa þar við þjálfun?

„Já, alveg klárlega. Ísland er mitt land og ég á fullt af vinum þar, fjölskyldan verið þar í tæp 20 ár og ég er alltaf til í að vera þar. Það er ekki svo langt frá Svíþjóð, strákarnir eru komnir á unglingsárin og ég hef aðeins minni áhyggjur af þeim en kannski áður. Deildirnar í Skandinavíu klárast aðeins seinna og það gætu líka möguleikar opnast þar. Varðandi fjölskylduna væri ég auðvitað til í að vera nálægt, en ég útiloka ekkert. Mig langar að komast aftur í þjálfun, það er það sem ég elska rosalega mikið. Maður er ekkert alltaf í þeirri stöðu að geta valið hvað hentar manni best."

Röng ákvörðun að semja við Värnamo
Túfa samdi við Värnamo í kringum síðustu áramót. Liðið hafði fallið úr sænsku úrvalsdeildinni og langtímaplanið var að komast aftur upp, en slæmt gengi fyrri hluta móts varð til þess að Túfa var látinn taka pokann sinn snemma í júlí. Þá hafði liðið tapað níu af síðustu tíu leikjum sínum.

„Stutta svarið er að við náðum ekki að vinna leiki. Ég er búinn að vera það lengi í fótboltanum að ég veit að þolinmæðin er ekki það mikil, sama hvaða deild það er, það eru ekki endalaus tækifæri."

„Núna þremur og hálfum mánuði seinna, eftir að ég setti allar tilfinningar til hliðar og horfði aftur á leiki, þá met ég þetta sem ranga ákvörðun hjá mér að hafa samið við félagið. Þegar við byrjuðum að tapa leikjum þá sá maður að það hafði mikil áhrif því sama hafði gerst í efstu deild tímabilið á undan. Þá vann liðið bara þrjá leiki allt tímabilið. Ég held að það hafi spilað stóra rullu í þessu."

„Svo voru margir litlir hlutir sem urðu til þess að árangurinn var ekki góður. Ég er pínu fúll út í sjálfan mig eftir að hafa reynt að nota öll trixin og reynsluna þá náði ég samt ekki að finna rétta lausn á því hvernig liðið gæti unnið fleiri leiki. Það situr í mér því ég hugsa fyrst um hvað ég hefði getað gert öðruvísi."

„Eftir að ég var látinn fara þá hefur félagið fengið inn sex nýja leikmenn sem eru allir að spila. Það segir líka sitt. Það gengur betur núna, fleiri leikir að vinnast og þeir nánast búnir að bjarga sér frá falli. Af þessum sex koma fjórir úr úrvalsdeildinni og svo Victor Claesson sem er fyrrum fyrirliði FCK. Liðið var ekki alveg nógu gott. Þetta er reynsla og ég tók ákvörðun að semja við félagið. Ég stend og fell með því, tek þetta með mér í næsta starf,"
segir Túfa.

Þetta er annar hlutinn af viðtalinu við Túfa og lokahluti þess verður birtur hér á síðunni í kvöld.
'Kann eiginlega ekkert að vera í fríi'

'Kann eiginlega ekkert að vera í fríi'

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lífið er áfram fótbolti og Túfa hefur verið að fylgjast með Malmö undanfarnar vikur og mánuði.

Lífið er áfram fótbolti og Túfa hefur verið að fylgjast með Malmö undanfarnar vikur og mánuði.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Núna þremur og hálfum mánuði seinna, eftir að ég setti allar tilfinningar til hliðar og horfði aftur á leiki, þá met ég þetta sem ranga ákvörðun hjá mér að hafa samið við félagið

Núna þremur og hálfum mánuði seinna, eftir að ég setti allar tilfinningar til hliðar og horfði aftur á leiki, þá met ég þetta sem ranga ákvörðun hjá mér að hafa samið við félagið

Canon

Mynd: Varnamo

Fjölskyldan er búsett í Malmö og strákarni, Stefan og Novak, æfa með Malmö.

Fjölskyldan er búsett í Malmö og strákarni, Stefan og Novak, æfa með Malmö.

Canon

Mynd: Malmö

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.