Fotbolti.net
07.07.26 - 22:52
Hilmar Jökull Stefánsson
Gatorade

Nenni Þór eftir sigurmark: Helvíti gott

Auglýsing
Nenni Þór eftir sigurmark: Helvíti gott
Canon

Mynd: KFA

Nenni Þór Guðmundsson skoraði sigurmark Austfirðinga þegar KFA komst áfram í 8-liða úrslit Gatorade bikars Fótbolti.net í kvöld. Nenni lagði einnig upp annað mark KFA manna þegar skot hans var varið og Þór Sigurjónsson fylgdi á eftir. Fótbolti.net ræddi við Nenna að leik loknum.

Lestu um leikinn: KFA 3 - 2 Augnablik

Hvernig er tilfinningin svona beint eftir leik.

„Bara mjög góð, mjög ánægður. Alltaf gaman að komast langt í bikar.“

KFA hefur gengið illa í deildinni á tímabilinu, er ekki gulrót að komast áfram í bikarnum?

„Jú og að ná að púsla síðustu sigrum saman, ég held að það sé helvíti gott.“

Eftir að hafa komist í 2-0 í leiknum og haft yfirhöndina meira og minna allan leikinn þá lentu KFA í því að Augnablik jöfnuðu 2-2 en það var síðan Nenni sem skoraði sigurmarkið stuttu eftir að Augnablik jafnaði.

„Tilfinningin var mjög góð. Það var lítið eftir og við náðum þessu virkilega vel. Við vorum yfirvegaðir og vissum að við yrðum að verða stærri.“

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.