07.11.26 - 10:20
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Af hverju féll KA?
Þór gerði það hrikalega vel og maður tekur hatt sinn ofan fyrir því

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sævar Pétursson er framkvæmdastjóri KA.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KA verður í Lengjudeildinni 2027.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Eiður kom inn í teymið síðustu tvo mánuðina.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KA féll úr Bestu deildinni í lok síðasta mánaðar eftir tíu tímabil í röð í efstu deild. Fyrir mót var KA spáð 7. sæti í spá okkar á Fótbolta.net.
Enn eitt tímabilið byrjaði KA mótið hægt, fékk eitt stig úr fyrstu þremur leikjunum, vann svo þrjá leiki í röð, en tapaði næstu sex þar á eftir. Einungis tveir af síðustu níu leikjunum fyrir skiptingu unnust og liðið var þá í næstneðsta sæti. Níu stig úr síðustu fimm leikjunum dugðu ekki til að bjarga liðinu frá falli.
Fótbolti.net ræddi við Sævar Pétursson, framkvæmdastjóra KA, um fallið.

TENGT EFNI
Túfa er fyrsti kostur KA - „Erum að sjá hvort það gangi upp"
Hvernig líður þér með fallið, var strax hugsunin að stefna beint upp aftur og láta fallið ekki hafa of mikil áhrif á ykkur?
„Maður var sár og svekktur í tvo daga, svo er það bara út með kassann. Við ætlum að staldra bara þetta eina ár við í næstefstu deild, læra af þessu þannig að svona komi ekki aftur fyrir hjá okkur."
„Á sama tíma er þessi Lengjudeild orðin andskoti snúin að fara upp úr. Eins og er þá er bara eitt lið sem fer beint upp og svo er bara lotterí í umspilinu. Þú getur átt frábært tímabil, endað í öðru sæti, en svo gert mistök í einum leik og þá er tímabilið búið. Við verðum að sýna því virðingu, en við ætlum að koma með lið sem við viljum að verði það sterkt og umhverfið þannig að það eigi helst að fara beint upp aftur."
Af hverju fellur KA, hvað klikkaði?
„Það eru margar ástæður. Sennilega mistök af okkar hálfu þegar við settum hópinn saman," segir Sævar en samsetning hópsins hefur verið mikið gagnrýnd, mikill fjöldi kantmanna en minni breidd fyrir miðju vallarins; í vörn, miðju og fremst.
„Þó að við höfum kannski ekki mikið rætt það þá eru átta leikmenn hjá okkur í sumar sem eru frá í að lágmarki níu vikur. Fjórir leikmenn sem áttu að vera lykilleikmenn á tímabilinu og ég held að Jóan spili mest af þeim, og það er um 100 mínútur, þrír aðrir minna. Það hefur áhrif."
Fyrir mót meiddust þeir Ásgeir Sigurgeirsson og Hrannar Björn Steingrímsson. Jóan Símun Edmundsson var mikið frá, Oliver Heiðarsson náði lítið að sýna áður en hann meiddist og áfram væri hægt að telja.
„Markmaðurinn okkar (Stubbur) handleggsbrotnaði við að lemja andstæðing (þegar hann ætlaði að kýla boltann í burtu). Þetta er eiginlega ótrúleg röð af skrítnum meiðslum; hásinaslit, krossband, fótbrot og handarbrot sem þú gast ekki séð fyrir. Við þurfum að bera virðingu fyrir því."
„Svo gerum við kannski ekki alveg nóg, þrátt fyrir að við höfum talið okkur vera að styrkja liðið til að bregðast við þessum áföllum, þá vantaði örlítið upp á."
„Það er líka kredit á Þórsarana, þeir gera mjög vel í restina. Þeir vinna fimm af síðustu sjö leikjunum og kredit á þá fyrir að ná úrslitunum þegar mest var undan. Þór gerði það hrikalega vel og maður tekur hatt sinn ofan fyrir því," segir Sævar.
Eiður ekki áfram
Eiður Smári Guðjohnsen var í ágúst ráðinn til KA og kom inn í þjálfarateymið sem aðalþjálfari með Hallgrími Jónassyni. Haddi verður ekki áfram og ljóst er að Eiður verður ekki heldur áfram.
„Eiður Smári kom í verkefnið hjá okkur, vorum hrikalega ánægðir með hans störf og þökkum honum fyrir."
„Það hefur aldrei komið í umræðuna, hvorki af okkar hálfu né hans, að hann yrði áfram á næsta ári. Eiður er með þannig verkefni á höfuðborgarsvæðinu að ég held hann eigi erfitt með að flytja búferlum norður í 12 mánuði."