Fotbolti.net
07.11.26 - 09:48
Brynjar Ingi Erluson

Íhugar að leggja hanskana á hilluna

Jesus Owono

Jesus Owono

Canon

Mynd: EPA

Jesus Owono, markvörður Andorra FC, íhugar alvarlega að leggja hanskana á hilluna eftir að hafa lent í hörðu samstuði við framherjann Jesus de Miguel, sem lést í kjölfarið.
Owono gefur ekki kost á sér í landsliðið eftir andlát De Miguel
TENGT EFNI

Owono gefur ekki kost á sér í landsliðið eftir andlát De Miguel

Um síðustu helgi fór Owono af miklum krafti út úr marki sínu og lenti harkalega á De Miguel í leik Andorra og Tenerife, með þeim afleiðingum að De Miguel fékk hné markvarðarins í brjóstkassann.

Hann lá sárkvalinn á vellinum áður en hann fór í hjartastopp og lést síðar á sjúkrahúsi.

Owono varð fyrir gríðarlegu áreiti á samfélagsmiðlum í kjölfar harmleiksins og ákvað að lokum að loka öllum reikningum sínum. Andorra FC sendi jafnframt frá sér yfirlýsingu þar sem fram kom að markvörðurinn væri að ganga í gegnum erfiðustu daga lífs síns.

Þá hefur verið greint frá því að Owono hafi ekki yfirgefið heimili sitt síðan atvikið átti sér stað og hafi hafnað því að spila með landsliði Miðbaugs-Gíneu í komandi landsliðsverkefni.

Samkvæmt spænskum fjölmiðlum á Owono nú erfitt með að sjá fyrir sér framtíð í fótbolta og íhugar alvarlega að leggja hanskana á hilluna.

„Það virðist engu máli skipta hversu mikið fólk reynir að hugga hann. Þetta hefur reynst honum ótrúlega erfitt og haft gríðarleg áhrif á hann, sérstaklega þegar hann hugsar til ekkju Jesus De Miguel og eins og hálfs árs sonar þeirra. Owono veit einfaldlega ekki hvernig hann á að takast á við þetta,“ sagði Ana Maye, sem starfaði áður hjá fótboltasambandi Miðbaugs-Gíneu og er náin Owono.
Jesus De Miguel lést langt fyrir aldur fram eftir þungt högg frá Owono

Jesus De Miguel lést langt fyrir aldur fram eftir þungt högg frá Owono

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.