05.11.26 - 12:11
Elvar Geir Magnússon
Owono gefur ekki kost á sér í landsliðið eftir andlát De Miguel

Jesus Owono hefur verið aðalmarkvörður Miðbaugs-Gíneu.

Mynd: EPA

Jesus Owono hefur verið aðalmarkvörður Miðbaugs-Gíneu.

Mynd: EPA
Markvörðurinn Jesus Owono gaf ekki kost á sér í komandi landsleiki Miðbaugs-Gíneu eftir andlát framherjans Jesus de Miguel í leik Andorra og Tenerife í vikunni

TENGT EFNI
„Þetta eru erfiðustu dagar lífs míns"
De Miguel, sem var 30 ára, lést eftir að hafa farið í hjartastopp eftir að hafa lent í árekstri við Owono í leik í spænsku annarri deildinni. Markvörðurinn fór með hnéð á undan sér og fór af miklum krafti í brjóstið á De Miguel. Hann lá sárkvalinn á vellinum áður en hann fór í hjartastopp.
Owono sagði að hann væri að upplifa „erfiðustu daga lífs síns“ í yfirlýsingu sem félagslið hans, FC Andorra, sendi frá sér í gær.
Fótboltasamband Miðbaugs-Gíneu gaf út að þessi 25 ára gamli markvörður hefði óskað eftir að vera ekki valinn í landsliðshópinn.