Fotbolti.net
07.11.26 - 17:46
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Tottenham ætlar að leggja fram kvörtun

Mathys Tel

Mathys Tel

Canon

Mynd: EPA

Tottenham ætlar að leggja fram formlega kvörtun vegna dómgæslunnar í 1-0 tapi gegn Leeds í dag.

Sami Mokbel hjá BBC segir að það sé mikil reiði í herbúðum Tottenham með að John Brooks dómari hafi ekki gefið Jayden Bogle rautt spjald fyrir að stíga á ökkla Mathys Tel í fyrri hálfleik.
De Zerbi: Treysti dómaranum fullkomlega
TENGT EFNI

De Zerbi: Treysti dómaranum fullkomlega

Brooks gaf varnarmanni Leeds ekki gult spjald og atvikið var skoðað ítarlega af VAR en upphaflega ákvörðunin stóð og dómarinn var ekki sendur á skjáinn til að endurmeta tæklinguna.

Tel þurfti að fara af velli í kjölfarið vegna meiðsla.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.