07.11.26 - 15:35
Brynjar Ingi Erluson
De Zerbi: Treysti dómaranum fullkomlega

Roberto De Zerbi

Mynd: EPA

Tel meiddist á ökkla

Mynd: EPA

Roberto De Zerbi

Mynd: EPA
Roberto De Zerbi, stjóri Tottenham, segist bera fullt traust til dómara þrátt fyrir umdeilda dómgæslu í 1-0 tapi liðsins gegn Leeds á Elland Road í dag.

TENGT EFNI
Farke: Ég kalla hann alltaf fiðrildið mitt
De Zerbi var allt annað en sáttur við frammistöðu Tottenham í síðari hálfleiknum, en liðið hafði unnið þrjá leiki í röð áður en það mætti Leeds í dag.
„Við verðskulduðum að tapa þessum leik miðað við frammistöðuna í síðari hálfleiknum. Við spiluðum ekki eins og við getum og þetta er hluti af þeirri vegferð sem við erum á. Við getum lært mikið af þessum leik.“
„Ég er samt mjög ósáttur við hvernig við spiluðum í síðari hálfleiknum. Við spiluðum ekki eins og topplið og sýndum hvorki réttan karakter né þann líkamlega styrk sem til þarf,“ sagði De Zerbi.
Tvö umdeild atvik komu upp í leiknum sem De Zerbi var spurður út í. Annars vegar tækling Jayden Bogle á Mathys Tel, þar sem hann steig aftan á ökkla Frakkans en slapp við spjald, og hins vegar gult spjald sem Pedro Porro fékk þrátt fyrir að hafa unnið boltann.
„Pedro Porro fór í einvígi og fékk alveg ótrúlegt gult spjald. Ég sá hins vegar ekki atvikið með Mathys Tel og get því ekki tjáð mig um það.“
De Zerbi var þá spurður hvort dómarinn hefði átt að fara sjálfur að skjánum til að skoða tæklinguna á Tel.
„Nei. Ég treysti dómaranum fullkomlega. Það breytir engu þótt hann fari að skjánum ef ekki er tekin rétt ákvörðun. Ég veit ekki hvað ég á að segja um það. Við verðum fyrst og fremst að einbeita okkur að því hvað við getum bætt í okkar eigin frammistöðu,“ sagði De Zerbi.