lau 08.feb 2020 20:30 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð |
|
Stefan Ljubicic er langyngstur hjá lettnesku meisturunum
Stefan Alexander Ljubicic er á mála hjá Riga FC í Lettlandi. Stefan er uppalinn í Keflavík og lék með Keflavík upp yngri flokkana.
Faðir hans, Zoran, kom til Íslands árið 1992. Zoran lék með HK, Grindavík, Keflavík og Njarðvík á sínum ferli sem leikmaður. Zoran þjálfaði þá einnig hjá Keflavík eftir leikmannaferilinn. Stefan á bróðir, Bojan Stefán sem leikið hefur á Íslandi.
Þjálfarinn hann Túfa (Srdjan Tufegdzic) heillaði mig mjög mikið. Hann er mjög góður þjálfari og veit hvernig hann a að tala við leikmenn, sérstaklega við mig.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stefan ákvað að koma heim og leika með Grindavík seinni hluta síðasta sumars.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það var gott fyrir mig, ég var að spila mjög vel en við vorum mjög óheppnir og féllum niður um deild.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sigurður Bjartur Hallssonn fagnar með Stefan á síðustu leiktíð.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Eins og ég myndi lýsa mér þá er ég mjög stór og sterkur framherji.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Völlurinn var fullur og allir spenntir að sjá mig spila. Ég spilaði mjög vel og stuðningsmenn byrjuðu að syngja nafnið mitt en svo fæ ég beint rautt í fyrsta leik."
Fæddur og uppalinn í Keflavík - Lærði fullt af pabba sínum
Eins og kom fram hér að ofan er Stefan uppalinn í Keflavík. Hann var spurður út í fyrstu skrefin í boltanum.
„Ég spilaði með öllum yngri flokkum hjá Keflavík og bróðir minn gerði slíkt hið sama. Ég hef aldrei búið annars staðar á Íslandi og fæddist hér," sagði Stefan við Fótbolta.net
Stefan var spurður út í Zoran, föður sinn, hjálpaði að eiga pabba sem var mikið í kringum fótboltann? „Ég lærði allt af pabba mínum."
„Eftir hvern leik horfum við saman á hann og förum yfir helstu atvik. Kosturinn við að hafa pabba er mikill, hann átti mjög góðan feril í fótbolta. Hann hjálpar og hefur hjálpað mér í átt að markmiðinu sem er að ná sem lengst í boltanum."
Aðstaðan heillaði hjá Brighton - Fór út 16 ára
Stefan ákvað að ganga í raðir Brighton þegar hann var sextán ára. Var mikill áhugi á honum á þeim tíma?
„Það var mikill áhugi á mér í kringum þennan tíma. Ég var að spila með meistaraflokki þegar ég var fimmtán ára og var í yngri landsliðum og spilaði mjög vel á þessum árum (15-16 ára)."
„Ég fór á reynslu til Celtic, Brighton og Norwich en Brighton-ferðin var mest spennandi fannst mér. Ég kom þarna fyrsta daginn og sá æfingasvæðið og það var ótrúlegt - eitt af bestu æfingasvæðum í Evrópu."
„Ég æfði þar í viku og spilaði svo leik gegn Chelsea og skoraði í leiknum og strax eftir leikinn töluðu þeir við mig og vildu strax skrifa undir."
„Ég gat ekki annað gert en að samþykkja, toppaðstæður og klúbburinn vildi fara upp i ensku úrvalsdeildina. Það voru aðrir kostir en Brighton heillaði mig mest og ég sé alls ekki eftir því að fara þangað."
„Ég átti gott timabil annað árið mitt og var að skora í nánast hverjum einasta leik. Þá fékk ég að æfa með aðalliðinu einu sinni til tvisvar í viku sem var æðislegt."
Tíminn hjá Brighton
Hver var munurinn að æfa hjá Brighton miðað við hvernig hlutirnir voru heima í Keflavík?
„Fótbolti þar og heima á Íslandi er öðruvísi en þar er ekki bara fótboltinn sem er öðruvísi. Við erum 15-17 ára saman og við æfum eins og aðalliðið, við mætum saman í morgunmat og æfum eftir hann. Svo er hádegismatur og önnur æfing."
Hvað er það sem Stefan tekur með sér frá tímanum hjá Brighton? „Það sem ég lærði mest var aginn í kringum hlutina og það að sýna fagmennsku. Allt skiptir máli og það sést strax hverjir eru að gera réttu hlutina."
Var Stefan á einhverjum tímapunkti nálægt því að komast í aðalliðið hjá Brighton? „Ég átti gott timabil annað árið mitt og var að skora í nánast hverjum einasta leik. Þá fékk ég að æfa með aðalliðinu einu sinni til tvisvar í viku sem var æðislegt."
Hverjir voru hápunktarnir ef hann lítur til baka og gerir upp tímann hjá Brighton? „Ég myndi segja hápunktana vera þá að æfa með aðalliðinu mjög oft og að skora mörk á móti stórum liðum, t.d. Arsenal, Chelsea og Tottenham. Það ásamt því að vinna titil (Stefan var hluti af liði Brighton sem vann Sussex bikarinn)."
Lánaður í neðrideildirnar
Stefan var í tvígang lánaður frá Brighton í neðrideildirnar á Englandi. Bognor Regis Town (6. deild) og Eastbourne Borough (5. deild) voru áfangastaðirnir.
Á sínum tíma tjáði Stefan sig um fyrsta leikinn með Bognor Regis þegar hann fékk að líta rautt spjald í fyrsta leiknum sínum með liðinu:
„Ég fékk beint rautt spjald. Þetta gerðist þegar ég var að fara upp í skallabolta og ég var að horfa á boltann allan tímann. Ég hoppa aðeins fyrr en maðurinn, en ég er 1,95 á hæð og vinstri bakvörðurinn hjá þeim var 1,70 eða eitthvað."
„Ég fer með hendurnar upp til að vera öruggur, hann hoppar í mig og dettur," sagði Stefan við Fótbolta.net árið 2018.
Hvernig sér Stefan þetta atvik þetta fyrir sér í dag? „Ég fór upp í skallabolta og gaf honum feitt olnbogaskot. Hann steinrotaðist, þessi leikur er mjög eftirminnilegur. Völlurinn var fullur og allir spenntir að sjá mig spila. Ég spilaði mjög vel og stuðningsmenn byrjuðu að syngja nafnið mitt en svo fæ ég beint rautt í fyrsta leik. Ekki óskabyrjun en eithvð sem ég mun ekki gleyma," sagði Stefan og hló.
Hver var hugsun Brighton þegar félagið ákvað að lána Stefan „Brighton fannst að ég ætti að fara á lán í neðri deildirnar. Félagið vildi það út af því ég er nánast stærri enn allir í deildinni sem ég var að spila í. Þeim fannst best fyrir mig að spila á móti fullorðnum mönnum."
„Ég var sammála þvi og prófaði að fara á lán. Það var mjög góð reynsla að sjá frá fyrstu hendi hvernig þessar deildir eru og það var alls ekki létt að spila í þeim. Það voru tveir til þrír leikir í viku og deild sem allir geta unnið alla."
Bauðst að framlengja við Brighton en vildi prófa nýja hluti
Í lok apríl sneri Stefan til baka frá Eastbourne til Brighton úr láni. Samningurinn var að renna út um sumarið. Hvað hugsaði Stefan á þeim tímapunkti?
,Mér fannst best að prófa eitthvað nýtt, fannst að ég ætti að spila meistaraflokks bolta. Það var möguleiki að framlengja hjá Brighton en ég var með áhuga frá öðrum liðum. Það var spennandi að prófa eitthvað annars staðar.
Álasund og Öster sýndu áhuga og fengu Stefan til reynslu, það hefur ekki heillað nóg? „Ég fór til Norðurlandanna og það var mikill áhugi hjá Álasund í Noregi. Þeir hjá Álasundi voru búnir að fylgjast með mér síðan ég var ungur."
Valdi að koma heim og spilaði með Grindavík
Stefan valdi að koma heim og lék síðustu tíu leikina með Grindavík í sumar. Hver var hugsunin á bakvið það val?
„Ég var nýkominn úr meiðslum, meiddist illa á ökkla og fannst best að koma heim og spila með Grindavík síðustu umferðirnar. Það var gott fyrir mig, ég var að spila mjög vel en við vorum mjög óheppnir og féllum niður um deild."
„Pabbi spilaði í Grindavík og þjálfarinn hann Túfa (Srdjan Tufegdzic) heillaði mig mjög mikið. Hann er mjög góður þjálfari og veit hvernig hann á að tala við leikmenn, sérstaklega við mig og við töluðum saman á hverri æfingu - það hjálpaði mér helling.
Langyngsti leikmaðurinn hjá lettnesku meisturunum
Fyrir um tveimur mánuðum, undir lok nóvember mánaðar var tilkynnt að Riga FC hefði fengið Stefan til liðs við sig. Stefan var spurður út í þessi félagaskipti.
„Eftir tímabilið með Grindavík var mikill áhugi frá FC Riga, þeir eru búnir að vera langbesta liðið í Lettlandi síðustu ár og áttu mjög mikinn séns á að komast eitthvað áfram í Meistaradeildinni (töpuðu í vítaspyrnukeppni gegn Dundalk)."
„Ég heyrði strax af áhuganum eftir tímabilið í Grindavík en þeir höfðu vitað af mér frá því ég var í Brighton." Hvað sá Riga í Stefan? „Þeir sáu mig sem ungan og efnilegan leikmann sem þeir vilja selja í framtíðinni. Ég er langyngstur í þessu liði," sagði Stefan um áhuga lettnesku meistaranna.
„Liðið heillaði mig mikið og það er gott að vera í liði sem vill vinna alla leiki og ná lengra í Meistaradeildinni. Þetta var 'no brainer' ákvörðun hjá mér að fara til Lettlands og spila fyrir svona stóran klúbb."
Hefur Stefan leikið eitthvað með liðinu þessa tvo mánuði sem hann hefur verið á mála hjá félaginu? „ Ég er búinn að vera meiddur aftan í læri og einnig að glíma við veikindi."
„Við erum búnir að spila þrjá leiki og ég spilaði hálftíma í siðasta leik, kom inn á gegn Zilina frá Slóvakíu."
Stór og sterkur framherji
Stefan var að lokum spurður út í hvernig leikmaður hann er. Hvernig skilgreinir hann sig sem leikmann?
„Eins og ég myndi lýsa mér þá er ég mjög stór og sterkur framherji. Ég er samt ekki þessi týpíski 'target man' heldur bý ég yfir góðri tækni, get lesið vel í leikinn og er almennt séð klókur leikmaður," sagði Stefan að lokum.
Í fyrramálið má hér á Fótbolti.net sjá svar Stefans þegar hann var spurður út í U21 árs landsliðið. Stefan var síðast valinn í október 2018.
Athugasemdir