West Ham hefur ákveðið að áfrýja rauða spjaldinu sem miðjumaðurinn Tomas Soucek fékk í markalausa jafnteflinu gegn Fulham á laugardag.
Leikurinn var ekki tíðindamikill framan af en það dró til tíðinda undir lok hans þegar Soucek, besti leikmaður West Ham á tímabilinu, fékk ansi ódýrt rautt spjald. Hann rak höndina í andlitið á Aleksandar Mitrovic sem féll í jörðina. Það var ekki mikið í þessu og meira að segja Mitrovic virtist reyna að biðla til dómarans að gefa Soucek ekki rauða spjaldið. Samt sem áður, eftir langa VAR skoðun, fór rauða spjaldið á loft.
Sjá einnig:
„Hvernig sjá bæði Lee Mason og Mike Dean þetta sem rautt spjald?"
Mörgum þótti þetta ansi harður dómur. West Ham hefur núna staðfest að félagið muni áfrýja rauða spjaldinu og fer málið á borð aganefndar enska knattspyrnusambandsins.
Soucek er á leið í þriggja leikja bann ef rauða spjaldið verður ekki dregið til baka. Þá mun hann missa af leik gegn Man Utd í FA-bikarnum og leikjum gegn Sheffield United og Tottenham í ensku úrvalsdeildinni. Það yrði mjög dýrkeypt fyrir West Ham.
Athugasemdir