08.09.26 - 21:41
Ívan Guðjón Baldursson
Patrik: Þakklátur fyrir að vera kominn til baka

Mynd: Kortrijk

Mynd: Kortrijk
Patrik Sigurður Gunnarsson, markvörður Kortrijk í Belgíu, snéri aftur í leikmannahóp liðsins í byrjun september eftir tæplega tveggja ára fjarveru vegna veikinda.

TENGT EFNI
Patrik opnar sig um sjaldgæfan taugasjúkdóm
Eins og Patrik hefur sagt frá greindist með alvarlegan taugasjúkdóm sem hafði mikil áhrif á hreyfigetu hans.
„683 dagar frá síðasta keppnisleik þar til ég komst aftur í leikmannahópinn. Þakklátur fyrir að vera kominn til baka. Eitt skref í einu," skrifar Patrik í færslu á samfélagsmiðlum.
Patrik, sem er 25 ára gamall og er með fjóra A-landsleiki að baki, hefur verið á varamannabekknum síðustu tvo deildarleiki sem töpuðust báðir. Kortrijk situr á botni efstu deildar í Belgíu, án stiga eftir fimm umferðir. Með markatöluna 1-12.