Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 08. nóvember 2022 09:26
Elvar Geir Magnússon
Sjáðu gleðina sem braust út hjá Antony og hans nánustu
Mynd: Getty Images
Í gær var brasilíski landsliðshópurinn fyrir HM opinberaður. Antony, leikmaður Manchester United, var meðal þeirra sem varð fyrir valinu.

Antony fylgdist að sjálfsögðu vel með þegar hópurinn var opinberaður. Hann var í stofunni heima með sína nánustu með sér og braust út mikil gleði þegar nafn hans var lesið upp, eins og sjá má hér að neðan.

Einnig má sjá þegar Pedro, leikmaður Flamengo, fagnaði valinu með því að fara á skeljarnar og biðja unnustu sinnar.

Það var svakaleg samkeppni um að komast í landsliðshópinn hjá Brössum og leikmenn eins og Roberto Firmino hjá Liverpool og varnarmaðurinn Gabriel Magalhaes hjá Arsenal eru meðal manna sem eru skildir eftir heima.


Athugasemdir
banner
banner
banner