Fotbolti.net
08.11.26 - 09:50
Brynjar Ingi Erluson

Hló þegar hann sá Man Utd í fallsæti - „Trúi þessu ekki“

Hló þegar hann sá Man Utd í fallsæti - „Trúi þessu ekki“
Canon

Mynd: EPA

Manchester United féll niður í fallsæti eftir óvæntan sigur Nottingham Forest á grönnum þeirra í Manchester City í gær, en fyrrum leikmaður United gat ekki annað en hlegið þegar hann sá stöðuna í deildinni.
England: Þriðja tap Man City í röð
TENGT EFNI

England: Þriðja tap Man City í röð

Forest vann afar óvæntan sigur á Man City þar sem enski framherjinn Liam Delap skoraði tvö mörk gegn sínum fyrrum félögum.

Forest var í fallsæti fyrir umferðina en tókst að lyfta sér upp úr því með þessum frækna sigri.

Um leið féll Man Utd niður í fallsæti og vakti það mikla athygli í beinni útsendingu á beIN Sports, þar sem Dimitar Berbatov, fyrrum leikmaður United, var sérfræðingur.

Berbatov átti vart orð yfir stöðunni og gat ekki annað en hlegið þegar hann sá deildartöfluna.

„Sjáðu þetta. Ég trúi þessu ekki. Miðað við hvernig liðið hefur spilað undanfarið þá á það skilið að vera þarna, en það er leikur á morgun (í dag),“ sagði Berbatov.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.