07.11.26 - 19:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
England: Þriðja tap Man City í röð

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Nott. Forest 3 - 1 Manchester City
1-0 Jair Cunha ('6 )
2-0 Liam Delap ('18 )
2-1 Rayan Cherki ('52 )
3-1 Liam Delap ('73 )
1-0 Jair Cunha ('6 )
2-0 Liam Delap ('18 )
2-1 Rayan Cherki ('52 )
3-1 Liam Delap ('73 )
Man City tapaði þriðja deildarleiknum í röð þegar liðið tapaði gegn Nottingham Forest. Þetta var aðeins annar sigur Forest á tímabilinu. Forest fékk drauma byrjun þegar Jair Cunha vann boltann af Josko Gvardiol og kom sér inn á teiginn og skoraði.
Nottingham Forest komst síðan í skyndisókn stuttu síðar eftir að hafa unnið boltann á eigin vallarhelmingi. Liam Delap tók á sprettinn og skoraði með föstu skoti.
Erling Haaland var hársbreidd frá því að minnka muninn undir lok fyrri hálfleiks en Jair Cunha bjargaði glæsilega á síðustu stundu.
Rayan Cherki kom Man City aftur inn í leikinn þegar hann negldi boltanum í bláhornið í upphafi seinni hálfleiks.
Delap innsiglaði sigur Nottingham Forest þegar hann batt endahnútinn á góða skyndisókn og skoraði með skoti í stöngina og inn.
Man City er í 2. sæti með 21 stig, sex stigum á eftir Arsenal, eftir þriðja deildartapið í röð. Forest stökk upp úr fallsæti og er í 16. sæti með 9 stig.