Fotbolti.net
09.02.26 - 14:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Virðist takmarkað horfa til framtíðar

Landsliðsþjálfarinn Arnar Gunnlaugsson.

Landsliðsþjálfarinn Arnar Gunnlaugsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Skoðanapistill

[email protected]

Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Síðustu ár, eftir að Kári Árnason og Ragnar Sigurðsson lögðu skóna á hilluna, hefur mikið verið rætt og ritað um skort á íslenskum miðvörðum í háum gæðaflokki.

Sverrir Ingi Ingason er í háum gæðaflokki og hefur sýnt að hann er okkar besti miðvörður og Daníel Leó Grétarsson hefur oft sýnt að hann getur spilað vel með landsliðinu, við hlið Sverris. Hörður Björgvin Magnússon er að spila í sömu deild og Sverrir, grísku úrvalsdeildinni, en meiðsli hafa sett stórt strik í reikninginn hjá honum síðustu ár og ekki verið tækifæri til að kalla hann mögulegan byrjunarliðsmann í landsliðinu. Hjörtur Hermannsson hefur einnig sýnt góðar rispur með landsliðinu og Guðlaugur Victor Pálsson flakkað milli bakvarðar og miðvarðar.

Samkeppnin við okkar bestu menn er takmörkuð. Því verr og miður. Það eru fáir miðverðir að banka fast á dyrnar.
Svona er aldursdreifingin í hópnum - Tíu aldrei spilað landsleik
TENGT EFNI

Svona er aldursdreifingin í hópnum - Tíu aldrei spilað landsleik

Arnar Gunnlaugsson valdi í dag tuttugu manna landsliðshóp fyrir vináttuleik gegn Mexíkó. Í hópnum eru þrír miðverðir. Einn þeirra verður þrítugur á árinu, einn 36 ára og mun spila í Lengjudeildinni í sumar og einn 37 ára. Það er ljóst að það er ekki verið að horfa til framtíðar í þessu vali.

Takmarkað horft til framtíðar
Heilt yfir virðist takmarkað vera horft til framtíðar í valinu. Þrír leikmenn sem gjaldgengir eru í U21 landsliðið eru í hópnum og mesta framtíðin er væntanlega í þeim ásamt mögulega Kolbeini Þórðarsyni sem hefur verið nálægt landsliðshópnum síðustu mánuði. Arnar er svo mögulega að horfa í til skamms tíma þegar með valinu á Gylfa Þór Sigurðssyni, sjá hvort hann geti nýst honum í leikjum seinna á þessu ári.

Það vekur líka athygli að Birnir Snær Ingason (1996) er í hópnum en ekki leikmenn sem eiga líklega meiri framtíð eins og Óskar Borgþórsson (2003) eða Kjartan Kári Halldórsson (2003).

Af hverju ekki að taka efnilegan miðvörð?
Það er fátt um auðugan garð að gresja þegar kemur að yngri miðvörðum sem spila á Íslandi og gera tilkall í landsliðshópinn. En það er þó einn sem hefur verið í U21 landsliðshópnum.

Þorri Stefán Þorbjörnsson (2006) hefur verið i U21 hópnum og var sennilega hvað næst því að fá kallið í þennan hóp yngri miðvörðum. Hann var í stóru hlutverki þegar leið á síðasta tímabili í liði sem endaði í 5. sæti Bestu deildarinnar. Annar augljós kostur hefði verið Ásgeir Helgi Orrason (2005) hjá Breiðabliki en hann er enn að glíma við meiðsli. Baldvin Þór Berndsen (2004) hefur þá verið í stóru hlutverki hjá ÍA og er gjaldgengur í U21.

Hans Viktor Guðmundsson, Damir Muminovic og Guðmundur Kristjánsson eru allir réttfættir en Þorri Stefán er örvfættur. Hefði ekki verið kjörið tækifæri að líta til framtíðar með því að velja Þorra í hópinn fyrir þennan vináttuleik?

Greinin er ekki löstur á þá sem eru valdir, þeir eru augljóslega að mati landsliðsþjálfarans bestu kostirnir í þennan hóp. En það má velta fyrir sér hvort ekki hefði verið hægt að horfa meira til framtíðar.
Hefði verið hægt að ýta undir framþróun Þorra Stefáns með því að velja hann í hópinn?

Hefði verið hægt að ýta undir framþróun Þorra Stefáns með því að velja hann í hópinn?

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Damir Muminovic verður 36 ára á árinu og mun spila í Lengjudeildinni í sumar.

Damir Muminovic verður 36 ára á árinu og mun spila í Lengjudeildinni í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.