Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 09. ágúst 2020 16:43
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimild: bold.dk 
Raggi Sig ekki með gegn Manchester United
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Landsliðsmiðvörðurinn Ragnar Sigurðsson verður ekki með FC Kaupmannahöfn þegar liðið mætir Manchester United í 8-liða úrslitum Evrópudeildarinnar á morgun.

Ragnar er enn á meiðslalistanum ásamt kantmanninum Viktor Fischer.

Leikurinn er klukkan 19:00 annað kvöld og fer sigurliðið áfram í undanúrslit Evrópudeildarinnar. Leikið er í Þýskalandi.

Ragnar framlengdi við FCK á föstudaginn og er nú samningsbundinn félaginu út næsta tímabil.

Ragnar er 34 ára og á 94 landsleiki fyrir Ísland.
Athugasemdir
banner