Man Utd vill fá Watkins - Helmingslíkur á að Ten Hag verði áfram - PSG hefur áhuga á Mateta
   mán 09. ágúst 2021 14:30
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net
Nikolaj leikmaður annars þriðjungs - Ein af sögum sumarsins
Nikolaj Hansen.
Nikolaj Hansen.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 á laugardaginn var opinberuð niðurstaða í kjöri lesenda á leikmanni annars þriðjungs í Pepsi Max-deildinni.

Danski sóknarmaðurinn Nikolaj Hansen bar sigur úr býtum í kjörinu en sérfræðingar Innkastsins höfðu tilnefnt fjóra leikmenn.

Kosningin - 2189 atkvæði:
Nikolaj Hansen - Víkingur (40,7%)
Hannes Þór - Valur (28,7%)
Kristinn Steindórs - Breiðablik (20,3%)
Arnór Sveinn - KR (10,2%)

Nikolaj er markahæsti leikmaður Pepsi Max-deildarinnar en hann hefur skorað 13 mörk í 15 leikjum og á risastóran þátt í því að Víkingar eru að berjast um Íslandsmeistaratitilinn.

Nikolaj hefur verið hreinlega magnaður og fær hann verðlaun frá Origo, Bose Quiet Comfort Earbuds, sem eru þráðlausir noise cancelling heyrnartappar.

„Ein af sögum sumarsins. Hann er næstum kominn með jafnmörg mörk í efstu deild á einu tímabili og hann hafði samtals skorað áður en hann mætti. Hann hefur verið algjörlega geggjaður og ég hlakka til að sjá hann með heyrnartólin," segir Tómas Þór Þórðarson í útvarpsþættinum.

Sjá einnig:
Leikmaður fyrsta þriðjungs: Sævar Atli Magnússon (Leiknir)
Íslenski boltinn - Sambandsdeildin, Lengjan og Pepsi Max með Rabba
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner