Fotbolti.net
09.09.21 - 14:04
Elvar Geir Magnússon

Vill ekki skýla sér á bak við afsakanir

Vill ekki skýla sér á bak við afsakanir
Canon

Mynd: Getty Images

Arsenal er stigalaust á botni ensku úrvalsdeildarinnar en vonast til að koma sér á blað á laugardaginn þegar liðið mætir Norwich, öðru stigalausu liði.

Ben White og fleiri leikmenn eru að snúa til baka.
„Ég hlakka til þegar allir verða klárir í slaginn og við getum reynt að komast á skrið. Við viljum samt ekki afsaka okkur neitt. Við vitum hversu erfið byrjunin var, meiðsli og Covid vandamál sem voru að hrjá okkur," segir Mikel Arteta, stjóri Arsenal.

„Við þurfum að endurræsa okkur núna, fá alla upp á tærnar og fara að vinna fótboltaleiki."

Er leikurinn gegn Norwich leikur sem Arsenal verður að vinna?

„Það er alltaf þannig hjá Arsenal. Pressan er til staðar, það er pressa á að vera eins ofarlega og hægt er. Það er okkar að ná öllu sem hægt er úr liðinu," segir Arteta.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.