Fotbolti.net
09.11.26 - 08:30
Elvar Geir Magnússon
- Skrifar frá Benidorm

Ekki spilað í mánuð en mætir til móts við landsliðið

Hópurinn kemur saman til æfinga á Spáni í dag

Mikael Neville Anderson.

Mikael Neville Anderson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Íslenska landsliðið kemur saman á Spáni í dag þar sem það verður í stuttum æfingabúðum áður en það flúgur til Búlgaríu síðar í vikunni og mætir heimamönnum í Plovdiv á föstudag.

Ísland er á toppi síns riðils í C-deild Þjóðadeildarinnar en tvær umferðir eru eftir. Síðasti leikur Íslands verður heimaleikur gegn Lúxemborg á Laugardalsvelli á mánudaginn.

Mikael Anderson, leikmaður danska liðsins AGF, var valinn í hópinn en athygli vekur að það eru um fjórar vikur síðan hann spilaði síðast fyrir liðið. Hann hefur misst af síðustu sjö leikjum vegna meiðsla.

Mikael er þó væntanlegur til Spánar í dag til móts við íslenska hópinn. Hann er að jafna sig af meiðslunum og verður líklega skoðaður af læknateymi íslenska liðsins.
<b>Landsliðshópurinn -</b> Daníel Leó valinn og Kristian snýr aftur
TENGT EFNI

Landsliðshópurinn - Daníel Leó valinn og Kristian snýr aftur

Fékk verðskuldað lof eftir síðasta glugga
Mikael, sem er 28 ára, fékk verðskuldað lof fyrir frammistöðu sína í síðasta landsleikjaglugga.

„Mikael Neville Anderson kom sterkur inn í hægri bakvörðinngegn Búlgörum. Lítil sem engin samkeppni hefur verið við Guðlaug Victor í stöðunni en frammistaða Mikaels gegn Búlgörum gæti breytt því og skapað raunverulega samkeppni um stöðuna," skrifaði Kári Snorrason, fréttamaður Fótbolta.net, í samantekt um gluggann.

Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari Íslands, hrósaði honum sérstaklega.

„Þegar ég tók við liðinu þá var hann einn af fyrstu leikmönnunum sem ég talaði við og sagði bara hreint út að hans landsliðsferill hafi ekki alveg verið eins og hann sjálfur hefði vonast eftir af því að hann er búinn að vera sterkur leikmaður fyrir sín félagslið og leiðtogi og mögulega hefur hann verið að spila stöðu þar sem við höfum haft mikið af góðum leikmönnum. Ég fagna því, betra seint en aldrei, mér finnst hann vera að sýna núna hans gildi sem leikmaður og vægi innan hópsins og hvað hann mun bjóða okkur upp á," sagði Arnar í síðasta verkefni.

„Hann er svo sannarlega týpa af leikmanni sem við þurfum á að halda. Fljótur og kraftmikill, með góðan leikskilning og með góða reynslu. Frammistaða hans núna í síðasta leik var að mínu mati ein af hans betri í bláu treyjunni þannig mér finnst einhvern veginn núna, miðað við hvað hann er búinn að upplifa sem leikmaður á sínum ferli að núna sé hans augnablik í að eigna sér ákveðna möguleika sem að allir sjá að er fyrir hendi í okkar liði."

Fótbolti.net er á Spáni og flytur fréttir með undirbúningi íslenska liðsins. Í kvöld munu koma viðtöl og fleira efni hér á síðuna.
Mikael lék mjög vel í síðasta landsleikjaglugga.

Mikael lék mjög vel í síðasta landsleikjaglugga.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Ekki spilað í mánuð en mætir til móts við landsliðið
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.