Fotbolti.net
04.11.26 - 15:28
Kári Snorrason

Fyrsta hugsun að henda öllum heim - „Þetta voru bara svik“

Auglýsing
Arnar Gunnlaugsson.

Arnar Gunnlaugsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari tilkynnti fyrr í dag lansdsliðshóp sinn sem heimsækir Búlgaríu og tekur á móti Lúxemborg í síðustu tveimur leikjum liðsins í C-deild Þjóðadeildarinnar.

Ísland er á toppi riðilsins með átta stig, tveimur stigum meira en Eistland sem er í 2. sæti.

Fótbolti.net ræddi við Arnar að loknum blaðamannafundi landsliðsins sem var haldinn á Laugardalsvelli í hádeginu eftir að hópurinn var tilkynntur.
Markmiðið skýrt
Vinni Ísland riðilinn fer liðið beint upp í B-deildina og möguleiki er að sigur í riðlinum tryggi umspil um sæti á EM 2028.

„Markmiðið er mjög skýrt. Við þurfum að klára málið. Það getur verið erfið hindrun en ég skynja það að hópurinn er mjög einbeittur á að gera það. Læra af fyrri mistökum - koma okkur í B-deild og safna eins mörgum stigum og hægt er svo við verðum í góðri stöðu fyrir hugsanlegt umspil fyrir EM.“

Ánægður með afgreiðslu agabrotana
Nú þegar rykið er aðeins sest, ert þú ánægður með meðhöndlun á agabrotunum sem áttu sér stað í síðasta glugga?

„Virkilega, ég held að það sé hollt að efast alltaf einhvern veginn um sjálfan sig. Fyrsta hugsun var blóðheit - ætla sér að reka menn heim og ég verð hetjan. Að gera það sama og Lars (Lagerback) gerði við Zlatan (Ibrahimovic).

En þegar þú hugsar þinn gang að þá er ég ánægður með þessa ákvörðun, sambandið og leikmennina sem komu að þessu máli, hvernig þeir hafa dílað við þetta í kjölfarið. Ég er enn sáttari við leikmannahópinn og fyrirliðann minn hvernig þeir höndluðu þetta.“

Agabrot innan íslenska landsliðshópsins í glugganum
TENGT EFNI

Agabrot innan íslenska landsliðshópsins í glugganum


Biður um traust stuðningsmanna
Arnar fékk gagnrýni fyrir að refsa brotlegum leikmönnum ekki nóg. Hann segist skilja þá umræðu fullkomlega en biður stuðningsmenn um að treysta sér fyrir ákvörðuninni.

„Ég held að fólk hafi ekki haft upplýsingar um hvað nákvæmlega gerðist þetta örlagaríka kvöld. En við höfðum allar upplýsingar. Ég þarf að biðja fólk um að treysta mér fyrir þeirri ákvörðun sem var tekin,“ sagði Arnar en rætt var um að leikmenn hefðu mætt á pókerklúbb umrætt kvöld.
Landsliðsmenn mættu á pókerklúbb - „Gat ekki séð neitt vesen“
TENGT EFNI

Landsliðsmenn mættu á pókerklúbb - „Gat ekki séð neitt vesen“


Engar gæsalappir með það
Hver voru þín fyrstu viðbrögð þegar þetta kom upp?

„Það var að henda öllum heim. Það er ósköp eðlilegt. Þetta voru innan gæsalappa svik, eða engar gæsalappir með það, þetta voru bara svik. Svo taka við samtöl, við leikmenn og stjórn KSÍ, og menn fá að anda með nefinu.

Maður fékk að vita hug viðkomandi leikmanna í samtölunum. Hver hefur sinn djöful að draga. Þessir menn voru ekki að meina eitthvað illt með því að gera þessa hluti. Í framhaldinu að því viljum við hjálpa þeim með þeirra vandamál, þeirra feril og þeirra líf,“
sagði Arnar að lokum.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Ísland er á toppi riðilsins í C-deild Þjóðadeildarinnar.

Ísland er á toppi riðilsins í C-deild Þjóðadeildarinnar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Landsliðið mætir Búlgaríu úti og Lúxemborg heima.

Landsliðið mætir Búlgaríu úti og Lúxemborg heima.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Agabrot komu upp í síðasta glugga.

Agabrot komu upp í síðasta glugga.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Orri boðaði liðið til fundar eftir agabrotin.

Orri boðaði liðið til fundar eftir agabrotin.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.