Fotbolti.net
09.11.26 - 18:18
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
- La Finca á Spáni

Gulli Victor: Skil að þetta hafi sett svart ský yfir síðasta glugga

Auglýsing
Guðlaugur Victor hefur spilað 62 landsleiki.

Guðlaugur Victor hefur spilað 62 landsleiki.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Eimskip
Landsliðsmaðurinn Guðlaugur Victor Pálsson ræddi við Fótbolta.net á hóteli landsliðsins í dag. Landsliðið verður á La Finca fram á miðvikudag en þá verður flogið til Plovdiv í Búlgaríu.

Ísland mætir Búlgaríu á föstudag og Lúxemborg á Laugardalsvelli á mánudag. Leikirnir eru liðir í Þjóðadeildinni en Ísland er í toppsæti riðilsins eftir fyrstu fjóra leikina.
Orri tjáir sig um agamálið: Eitthvað sem hópurinn átti að taka á saman
TENGT EFNI

Orri tjáir sig um agamálið: Eitthvað sem hópurinn átti að taka á saman

Frábær hópur
Hvernig leggst þetta verkefni í þig?

„Virkilega vel. Síðasta verkefnið var heilt yfir fínt. Þessi tvö jafntefli (gegn Eistlandi) voru kannski ekki bestu leikirnir okkar. Við erum virkilega spenntir fyrir komandi leikjum, gaman að vera mættur og vera kominn aftur í þennan frábæra hóp. Það er alltaf gaman að vera með strákunum og við erum til í þetta."

Ísland gerði tvö jafntefli gegn Eistlandi í síðasta verkefni en vann bæði Búlgaríu og Lúxemborg, og báðir leikirnir enduðu með 3-0 sigri.

Frábært að vera á La Finca
Þið hafið verið hérna áður á La Finca, hvernig er að vera hérna?

Það er frábært. Virkilega gott svæði, gott hótel og frábær matur. Það er allt til alls hérna: góð líkamsrækt, gott spa og svo er golfvöllur, bara meiriháttar."

Betra fótboltalið en Búlgaría og Lúxemborg
Er ekki frekar borðleggjandi að stefnan er 6 stig í þessum tveimur leikjum?

„Jú, jú, klárlega. Við förum ekkert leynt með það að við viljum vinna þennan riðil og byrjum bara á Búlgurunum. Það verður náttúrulega ekki auðvelt, það er aldrei auðvelt að fara í svona útileiki. Við þurfum að vera on it og klárir í það sem bíður okkar. Ef við erum 100% þá veit ég að við erum betra fótboltalið."

Leikurinn heima á móti Búlgurum var nokkuð góður. Er hægt að taka úr þeim leik?

„Alveg helling. En ég held þetta væri bara allt öðruvísi leikur. Núna erum við á útivelli og þeir á heimavelli, það er ferðalag fyrir okkur fyrir leikinn. Það var mikið af ferðalögum í síðasta glugga og þetta er alltaf smá trikkí."

„En við tökum helling frábært úr þeim leik og svo voru alveg hlutir úr þeim leik sem að við gátum bætt líka. Ef við erum 100% þá erum við betra lið og þá vinnum við leikinn."


Málið mjög vel tæklað
Það var komið upp atvik í síðasta glugga, agamál. Finnst þér vera aukin pressa á liðinu að ná góðum árangri í þessum glugga?

„Ég skil alveg að þetta hafi náttúrulega sett svart ský yfir síðasta glugga. Ég myndi segja að innanborðs sé þetta ekki meiri pressa af því að hópurinn er það þéttur og góður og við stöndum saman."

„Utan frá, já kannski, en við erum bara fókuseraðir saman hérna innandyra og auðvitað viljum við vinna. Við viljum vinna þennan riðil og við setjum nógu mikla pressu á okkur sjálfir þannig að það ætti ekki að skapa einhvern storm innanborðs. Þetta er frábær hópur og það var tæklað á þessu máli mjög vel og núna erum við bara komnir hingað og horfum fram á veginn."


Fyrirliðinn Orri Steinn kallaði hópinn saman fyrir síðasta leik síðasta verkefnis. Var ekki fínt að hreinsa þetta?

„Þetta var bara mjög gott. Án þess ég sé að fara mikið í smáatriði, en þetta var bara mjög gott. Við erum bara núna komnir hingað, þetta er búið og við horfum fram á veginn," segir Guðlaugur Victor.

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum efst
Gulli Victor: Skil að þetta hafi sett svart ský yfir síðasta glugga
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Guðlaugur Victor og Orri Steinn. Orri sagðist þakklátur þeim Gulla, Aroni Einar og Gylfa fyrir aðstoðina.

Guðlaugur Victor og Orri Steinn. Orri sagðist þakklátur þeim Gulla, Aroni Einar og Gylfa fyrir aðstoðina.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Gulli Victor: Skil að þetta hafi sett svart ský yfir síðasta glugga
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Gulli Victor: Skil að þetta hafi sett svart ský yfir síðasta glugga
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.